08. september 2010
Forsíða
Fréttir
Félagið
Liðið
Klúbburinn
Spjallborð
Miðakaup
Tenglar


Hvernig líst þér á leikmannakaup Tottenham í þessum félagaskiptaglugga?


(46 atkvæði)

  • 89%
  • 7%
  • 4%


Fótbolti.net 
Heimasíða Tottenham Hotspur 
Tottenham fréttir - enskar 
Advertisement

Eiður Smári kominn til Tottenham

eidur_smari_jpg_550x400_q95.jpgÞað er okkur hjá Tottenhamklúbbnum á Íslandi sannur heiður að fá að tilkynna að Eiður Smári, fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Mónakó hefur skrifað undir lánssamning við Tottenham út þessa leiktíð. Harry Redknapp stjóri Tottenham tilkynnti þetta á blaðamannafundi í dag. Eiður sem hefur ekki verið í náðinni hjá Mónakó virtist fyrir nokkrum dögum vera á leið til West Ham. Í dag föstudag var hinsvegar gengið frá lánsamningi hans við Tottenham. Eiður er þar með þriðji Íslendingurinn til að spila fyrir lið Tottenham. Fyrir hafa þeir Guðni Bergsson og Emil Hallfreðsson spilað með undir merkjum Tottenham. Segja má að Eiður sé að láta æskudrauminn rætast þar sem hann var stuðningsmaður Spurs á æskuárunum.  Ljóst er á viðtölum við Harry Redknapp að Eiður er í miklum metum hjá honum og telur Harry Eið gefa liðinu aukna möguleika á að spila mismunandi leikkerfi.


Við hjá Tottenhamklúbbnum á Íslandi bjóðum Eið Smára hjartanlega velkominn til Tottenham og óskum honum góðs gengis með liðinu í vetur.

 
Næstu Leikir
11. sept kl: 14:00.  Premier League
West Brom - Tottenham
14. sept kl: 18:45.  UEFA Cup
Werder Bremen - Tottenham
18. sept kl: 14:00.  Premier League
Tottenham - Wolves


© PCs ehf

Ummæli

Everything in our favour was against us.

Danny Blanchflower

Afritunarréttur © Tottenhamklúbburinn 2007-2008 All rights reserved
PCs - Joomla Sniðmát, Joomla Uppsetningar, Joomla Forritun. CSS 2.1 samhæft | Keyrt á Joomla!