08. september 2010
Forsíða
Fréttir
Félagið
Liðið
Klúbburinn
Spjallborð
Miðakaup
Tenglar


Hvernig líst þér á leikmannakaup Tottenham í þessum félagaskiptaglugga?


(46 atkvæði)

  • 89%
  • 7%
  • 4%


Fótbolti.net 
Heimasíða Tottenham Hotspur 
Tottenham fréttir - enskar 
Advertisement

Eiður í viðtali

eidur_gudjohnsen_signs.jpgEiður sem gekk á dögunum til liðs við Tottenham á lánssamningi kom fram í viðtali við vefsíðu Tottenham Hotspur. Þar segist Eiður spenntur yfir því að fá tækifæri til að spila með Tottenham. „Það er gott að vera kominn aftur til Englands,  að vera kominn aftur í búningsklefann, andrúmsloftið, húmorinn, þetta er allt gott“ sagði Eiður. „Ég er mjög þakklátur og hlakkar til að leika með Tottenham Hotspur.“


Þegar maður vaknar upp á leikdegi er eins og allur heimurinn sé að horfa á ensku úrvalsdeildina og ég sakna þess, og hlakka til að upplifa það“.

 

En hvað mun koma Eiðs breyta fyrir Tottenham? „Ég hef mikla reynslu, ég vona að ég geti gefið leikmönnum innblástur í búningsklefanum, og gefið stjóranum og liðinu fleiri möguleika á öðruvísi leikkerfi/leikstíl. Þetta hefur verið gott tímabil hjá Tottenham og ég vona að ég geti gefið liðinu meiri dýpt og aðra möguleika á leikdegi.“


„Liðið ætti að stefna að 4. sætinu í deildinni og virkilega leggja sig alla fram um að ná því, að gera það og vera ennþá í bikarkeppni þurfum við stóran hóp til að ná takmarkinu. Ég vonast til að vera hluti af þeim hóp.“


„Ég er mjög spenntur. Það er frábær tilfinning að vera kominn aftur og það má segja að ég hafi fundið hvatningu aftur. Ég er mjög ákveðinn í að gera allt sem ég get til að hjálpa liðinu.“

 
Næstu Leikir
11. sept kl: 14:00.  Premier League
West Brom - Tottenham
14. sept kl: 18:45.  UEFA Cup
Werder Bremen - Tottenham
18. sept kl: 14:00.  Premier League
Tottenham - Wolves


© PCs ehf

Ummæli

Bill Nick always wanted us to win with style and entertain the fans. If we won a game and we´d played badly, he was disappointed.

Cliff Jones

Afritunarréttur © Tottenhamklúbburinn 2007-2008 All rights reserved
PCs - Joomla Sniðmát, Joomla Uppsetningar, Joomla Forritun. CSS 2.1 samhæft | Keyrt á Joomla!