08. september 2010
Forsíða
Fréttir
Félagið
Liðið
Klúbburinn
Spjallborð
Miðakaup
Tenglar


Hvernig líst þér á leikmannakaup Tottenham í þessum félagaskiptaglugga?


(46 atkvæði)

  • 89%
  • 7%
  • 4%


Fótbolti.net 
Heimasíða Tottenham Hotspur 
Tottenham fréttir - enskar 
Advertisement

Klúbbferð á Tottenham - Everton

bolti__neti.jpgTottenham klúbburinn á Íslandi efnir nú til hópferðar á leik liðsins í samvinnu við Úrval Útsýn. Farið verður á leik Tottenham gegn Everton í Úrvalsdeildinni þann 23. október næstkomandi. Nánari tilhögun ferðarinnar má lesa hér fyrir neðan:

Lesa meira...
 
Defoe á skotskónum en Dawson á hækjum.

Landsleikur Englands gegn Búlgaríu á dögunum reyndist áhrifaríkur hvað leikmenn Tottenham varðar. Góðu fréttirnar eru þær að Defoe virðist í fínu formi. Á dögunum benti allt til þess að Defoe væri á leiðinni í aðgerð sem myndi halda honum frá fótboltanum í nokkrar vikur. Fréttir bárust svo á dögunum að aðgerðinni yrði frestað. Svo virðist sem meiðslin trufli Defoe ekkert of mikið því hann skoraði þrennu gegn Búlgaríu um helgina.

 

Slæmu fréttirnar eru hinsvegar þær að Michael Dawson meiddist illa í leiknum bæði á hné og ökla og verður frá keppni næstu sex til átta vikurnar.  

 
Van Der Vaart keyptur

vdv.jpgTottenham tilkynnti í dag að félagið hefði gengi frá kaupum á hollenska landsliðsmanninum Rafael van der Vaart frá Real Madrid. Félagaskiptaglugga leikmanna lokaði kl.17 að íslenskum tíma í gær og stuttu fyrir þann tíma bárust fréttir þess efnis að Tottenham væri að fá van der Vaart á láni frá Real Madrid (síðar kom í ljós að um var að ræða sölu, ekki lánssamning). Það voru því æsispennandi lokamínútur á glugganum því óvíst var hvort tilskyldir pappírar hefðu farið í gegn í tæka tíð. Það kom svo í ljós að efasemdir voru uppi um að samningurinn hefði gengið í gegn og þurfti því að úrskurða um það á fundi forráðamanna Úrvalsdeildarinnar í dag. Grænt ljós fékkst svo á félagaskiptin eftir fundinn og hefur Tottenham því fest kaup á honum fyrir 8 milljónir punda. Van der Vaart hóf feril sinn hjá Ajax en þaðan hélt hann til Hamburg árið 2005. Eftir þrjú ár hjá Hamburg var hann seldur til Real Madrid en gengur nú til liðs við Tottenham.

 

Við bjóðum van der Vaart velkominn til Tottenham

 
Næstu Leikir
11. sept kl: 14:00.  Premier League
West Brom - Tottenham
14. sept kl: 18:45.  UEFA Cup
Werder Bremen - Tottenham
18. sept kl: 14:00.  Premier League
Tottenham - Wolves


© PCs ehf

Ummæli

When Gazza came to the Spurs training ground for the first time, he got the ball, went around eight players as if they were not there and then smashed the ball into the net. Just to see him play like that made the hair stand up on the back of your neck. Everybody stood there and applauded him.

Terry Venables

Afritunarréttur © Tottenhamklúbburinn 2007-2008 All rights reserved
PCs - Joomla Sniðmát, Joomla Uppsetningar, Joomla Forritun. CSS 2.1 samhæft | Keyrt á Joomla!