Hópferð Tottenhamklúbbins ( UPPSELT )

0
Daginn

Þá er loksins komið að hópferð á vegum Tottenhamklúbbsins á Íslandi 🙂

Síðasta hópferð var í desember 2019, rétt áður en Covid-19 skall á.

Farið verður á leik Tottenham – Leicester sem verður á Tottenham Hotspur Stadium þann 17. september 2022 , kl. 16.30

ATH: AÐEINS 30 SÆTI Í BOÐI Í ÞESSA FERÐ !

** UPPSELT ER Í FERÐINA **

Ferðaupplýsingar :
* Flug út með Play – föstudaginn 16. september kl. 06.30 , lending á Stansted í London kl. 10.35.

* Flug heim með Play frá Stansted mánudaginn 19. september kl. 11.35 og lent í Keflavík kl. 13.40
(innifalið í flugi er innritaður farangur 20 kg + lítil handfarangurstaska að hámarki í stærð 42 x 32 x 25 cm ( 10kg ))

* Gisting á hóteli við Stratford í þrjár nætur , Ibis – Stratford ( án morgunverðar ) hægt að kaupa morgunverð á staðnum. Hótelið er í nokkurra min. göngufjarlægð frá einni stærstu verslunarmiðstöð í London , Westfield https://uk.westfield.com/stratfordcity – einnig er stutt að ganga í underground / lestar á Stratford Station.
Upplýsingar um hótel : https://all.accor.com/hotel/3099/index.en.shtml?utm_campaign=seo+maps&utm_medium=seo+maps&utm_source=google+Maps

* Rúta til og frá flugvelli ( ca. 40 mín rútuferð hvora leið )

* Íslensk fararstjórn

Verð : 79.990.- á mann ( miðað við 2 í herbergi )

Þeir aðilar sem ætla í hópferðina , þurfa að sjá sjálfir um skráningu í Tottenham klúbbinn í UK ( One Hotspur Member ) ásamt því að ganga frá greiðslu á miða þegar greiðsla fyrir miða er klár.
Verð ( ca. ) fyrir skráningu í klúbbinn í UK og miða á leikinn :
Skráning / Miði
Fullorðinn : 8.200 / 8.550 = 16.750.-
Eldri borgari : 4.300 / 4.300 = 8.600.-
Börn : 4.300 / 4.300 = 8.600.

Hér er hægt að skrá sig í Tottenhamklúbbinn í UK : https://www.tottenhamhotspur.com/fans/membership/one-hotspur/
Hér eru svo leiðbeiningar varðandi að skrá sig í klúbbinn i UK
https://ask.tottenhamhotspur.com/hc/en-us/articles/360001171669

Til að skrá sig í ferðina þarf að senda e-mail á spurs@spurs.is og gefa eftirfarandi upplýsingar um þann aðila eða þá sem vilja skrá sig í ferðina :
* Nafn / Nöfn
* Kt
* Heimilisfang/föng
* GSM númer
* E-mail fyrir alla aðila
* Tegund af herbergi sem óskað er eftir ( Twin / Double )
* CRN – membershipnúmerið sem viðkomandi fær við skráningu í Tottenhamklúbbinn í UK – ekki er nauðsynlegt að vera með þetta númer við skráningu í ferðina – en það þarf að senda þetta númer fljótlega eftir skráningu ( 4.8.2022 í síðasta lagi )
Greiða þarf staðfestingargjald kr. 30.000.- pr persónu við skráningu í ferðina – með því að millifæra á reikning Tottenhamklúbbsins á Íslandi : 0537 – 26 – 3110 , kt. 630103-3550 og senda skal kvittun á spurs@spurs.is
Eftirstöðvar þarf að ganga frá eigi síðar en 15. ágúst


** Ath að Tottenhamklúbburinn á Íslandi er eingöngu milligönguaðili varðandi þessa ferð , þeir aðilar sem fara í þessa ferð eru á eigin vegum og þurfa að vera með allar sínar tryggingar á hreinu þar sem Tottenhamklúbbnum á Íslandi ber ekki ábyrgð á ferðarofi , seinkunum á flugi ,frestun leiks , verkföllum flugvallastarfsmanna , covid-19 o.s.frv.


ATH: AÐEINS 30 SÆTI Í BOÐI Í ÞESSA FERÐ !

Ef ekki næst næg þátttaka í þessa ferð – getur klúbburinn aflýst ferðinni og endurgreiðir þá öllum staðfestingargjald sem hefur verið greitt.

Aðalfundur / Skemmtikvöld

0

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins á Íslandi verður haldinn föstudaginn 25.maí 2018 á Ölver í glæsibæ kl. 20.00
Strax að loknum aðalfundi verður smá uppskeruhátið þar sem snarl og mjöður verður í boði klúbbsins.

Hvetjum við alla Spursara til að mæta á fundinn og eiga svo góða kvöldstund í góðra vina hópi.

 

Dagskrá fundar:

1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar síðasta árs
3. Kosning stjórnar
4. Önnur mál

Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að mæta og gaman væri að sjá ný andlit á staðnum. Ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn Tottenhamklúbbsins má hinn sami hafa láta vita á e-mailið spurs@spurs.is eða í síma formanns 698-3791. Nýjir aðilar sem vilja leggja eitthvað á vogarskálarnar við rekstur klúbbsins og heimasíðunnar eru mjög velkomnir á fundinn – margar hendur vinna létt verk.

Stjórnin

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins 2026

0

Daginn

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins á Íslandi verður haldinn á Ölver , sunnudaginn 24. maí 2026 , kl. 13.30

Dagskrá fundar:

1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar síðasta árs
3. Kosning stjórnar
4. Önnur mál

Eftir fund munum við svo horfa á leik Tottenham – Everton , sem er síðasti leikur Tottenham á þessu tímabili.
Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að mæta og gaman væri að sjá ný andlit á staðnum.
Klúbburinn mun bjóða uppá Pizzur og drykki á fundinum.

Ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn Tottenhamklúbbsins má hinn sami láta vita á e-mailið spurs@spurs.is. Nýir aðilar sem vilja leggja eitthvað á vogarskálarnar við rekstur klúbbsins eru mjög velkomnir á fundinn – margar hendur vinna létt verk.

Stjórnin

Miðakaup 2025-2026

0

Daginn

Hér að neðan er listi yfir leikdaga og dagsetningar hvenær þarf að panta á leiki í síðasta lagi.

Hægt er að leggja inn pöntun á miðum á e-mailið spurs@spurs.is – við vitum svo nokkrum dögum eftir að frestur rennur út hvað við fengum mikið af þeim miðum sem pantaðir voru.

Sölugluggi 1
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 8. júlí kl. 12.00

Burnley 16.8.2025 CAT-C
Bournemouth 30.8.2025 CAT-C
Wolves 27.9.2025 CAT-C

Sölugluggi 2
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 5. ágúst kl. 12.00

Aston Villa 18.10.2025 CAT-B
Chelsea 1.11.2025 CAT-A
Man. Utd 8.11.2025 CAT-A

Sölugluggi 3
Síðasti möguleiki til að panta miða er laugardaginn 6. september kl. 12.00

Fulham 29.11.2025 CAT-B
Brentford 6.12.2025 CAT-B ( Hópferð – Uppselt )

Sölugluggi 4
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 7. október kl. 12.00

Liverpool 20.12.2025 CAT-A
Sunderland 3.1.2026 CAT-C
West Ham 17.1.2026 CAT-B

Sölugluggi 5
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 11. nóvember kl. 12.00

Man. City 31.1.2026 CAT-A
Newcastle 11.2.2026 CAT-A

Sölugluggi 6
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 6. janúar kl. 12.00

Arsenal 21.2.2026 CAT-A
Crystal Palace 4.3.2026 CAT-B
Nott. Forest 21.3.2026 CAT-B

Sölugluggi 7
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 17. febrúar kl. 12.00

Brighton 18.4.2026 CAT-B
Leeds 9.5.2026 CAT-B
Everton 24.5.2026 CAT-B


*ATH* að leikdagar á þessum leikjum eru EKKI staðfestir og gætu þeir verið fluttir v/ sjónvarpsútsendinga. Svo þarf líka að hafa í huga dagsetningar á FA CUP eftir áramót – einhverjar umferðir þar eru spilaðar ofaní deildarleiki.

  • Bikarleikir 2025-2026
    Hægt er að sækja um miða á heimaleiki í bikar , með eins miklum fyrirvara og hægt er.
  • Þegar dregið verður í riðla í meistaradeildinni og við fáum upplýsingar varðandi miðakaup á þá leiki , verður info um það bætt við hér.

** Klúbburinn áskilur sér rétt að nota alla þá miða sem klúbburinn fær úthlutað á einhverja leiki fyrir hópferð/ir á vegum klúbbsins **


ATH.   Það þarf að vera membershipnúmer í klúbbnum úti í UK (með gildistíma út tímabilið) á alla sem ætla á völlinn.
Í póstinum þarf að koma fram ( fyrir alla sem þurfa miða ) :
* Fullt nafn
* Membershipnúmer  ( linkur til að gerast one hotspur member ) : https://www.tottenhamhotspur.com/fans/membership/one-hotspur/
og
https://ask.tottenhamhotspur.com/hc/en-us/articles/360001171669
Þegar greiða á fyrir membership – þarf að velja standard fee.
* Tegund miða ( Adult / Junior / Senior )
* Ósk um hólf á vellinum.

Hólf í boði fyrir stuðningsmannaklúbba :
Norðurstúka 
513 / 512 / 423 / 110 / 113 ( Adult – Senior – Young Adult – Junior )
Suðurstúka
453 / 451 / 323 ( adults only pricing )
250 / 251 / 253 / 257 / 258 ( Adult – Senior – Young Adolt – Junior – safe standing í 250/251 )
Austurstúka
523 / 123 ( Adult only pricing )

Aðalfundur og Evrópu úrslitakvöld *(17.30 í stað 18.00 )*

0

Daginn

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins á Íslandi verður haldinn á Ölver – Glæsibæ , miðvikudaginn 21. maí 2025 , kl. 17.30

Dagskrá fundar:

1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar síðasta árs
3. Kosning stjórnar
4. Önnur mál

Eftir fund munum við svo horfa á úrslitaleikinn í Evrópudeildinni þar sem Tottenham mætir Man. Utd. á San Mamés leikvanginum í Bilbao á Spáni.
Tottenhamklúbburinn mun bjóða félagsmönnum uppá mat og drykki með leiknum.
Gerum þennan úrslitaleik eftirminnilegan í góðum hóp Spursara á Ölver.

Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að mæta og gaman væri að sjá ný andlit á staðnum. Ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn Tottenhamklúbbsins má hinn sami láta vita á e-mailið spurs@spurs.is. Nýir aðilar sem vilja leggja eitthvað á vogarskálarnar við rekstur klúbbsins eru mjög velkomnir á fundinn – margar hendur vinna létt verk.

Stjórnin

Hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi í maí 2025 ( UPPSELT )

0
Daginn  
Þá er komið að næstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi

Farið verður á leik Tottenham – Crystal Palace sem verður á Tottenham Hotspur Stadium,  
laugardaginn 10. maí  2025 , kl. 15.00
Sumar og sól í London á þessum árstíma.
** Það á eftir að velja sjónvarpsleiki fyrir þessa umferð – leiktími gæti breyst **

ATH: AÐEINS 40 SÆTI Í BOÐI Í ÞESSA FERÐ

Ferðaupplýsingar :

* Flug út með Play – föstudaginn 9. maí kl. 06.40 , lending á Stansted í London
kl. 10.40.
* Flug heim með Play frá Stansted mánudaginn 12. maí kl. 11.40 og lent í Keflavík
kl. 13.45
(innifalið í flugi er innritaður farangur 20 kg + lítil handfarangurstaska að hámarki í stærð 42 x 32 x 25 cm ( 10kg ) – sem kemst undir sætið fyrir framan farþega )
* Gisting á fínu hóteli í Stratford í þrjár nætur , Ibis – Stratford  m/morgunverði. Mjög fínt hótel sem klúbburinn hefur verið á áður og vakti mikla lukku þá.     Hótelið er í nokkurra min. göngufjarlægð frá einni stærstu verslunarmiðstöð í London ,  Westfield https://uk.westfield.com/stratfordcity  –   einnig er stutt að ganga í underground / lestar á Stratford Station.
Upplýsingar um hótel : https://all.accor.com/hotel/3099/index.en.shtml?utm_campaign=seo+maps&utm_medium=seo+maps&utm_source=google+Maps
* Rúta til og frá flugvelli  ( ca. 40-45 mín rútuferð hvora leið )
* Íslensk fararstjórn

Verð : 94.990.- á mann ( miðað við 2 í herbergi )
( Verð í einstaklingsherbergi er 139.990.- )
Þeir aðilar sem ætla í hópferðina , þurfa að sjá sjálfir um skráningu í Tottenham klúbbinn í UK ( One Hotspur Member ) ásamt því að ganga frá greiðslu á miða þegar greiðsla fyrir miða er klár.
Verð ( ca. ) fyrir skráningu í klúbbinn í UK og miða á leikinn :
Skráning / Miði  ( * ekki víst að við fáum sæti þar sem senior/junior miðar í boði )
Fullorðinn : 4.900 / 13.000 = 17.900.-
Eldri borgari : 2.500 / 6.500 = 9.000.-
Börn : 2.500 / 6.500 = 9.000.

Hér er hægt að skrá sig í Tottenhamklúbbinn í UK : https://www.tottenhamhotspur.com/fans/membership/one-hotspur/
Hér eru svo leiðbeiningar varðandi að skrá sig í klúbbinn i UK
https://ask.tottenhamhotspur.com/hc/en-us/articles/360001171669

Til að skrá sig í ferðina þarf að senda e-mail á spurs@spurs.is og gefa eftirfarandi upplýsingar um þann aðila eða þá sem vilja skrá sig í ferðina :
* Nafn / Nöfn
* Kt
* Heimilisfang/föng
* GSM númer
* E-mail fyrir alla aðila
* CRN – membershipnúmerið sem viðkomandi fær við skráningu í Tottenhamklúbbinn í UK – ekki er nauðsynlegt að vera með þetta númer við skráningu í ferðina – en það þarf að senda þetta númer fljótlega eftir skráningu ( 7.2.2025 í síðasta lagi ) Greiða þarf staðfestingargjald kr. 40.000.- pr persónu við skráningu í ferðina  – með því að millifæra á reikning Tottenhamklúbbsins á Íslandi  :  0537 – 26 – 3110  , kt. 630103-3550 og senda skal kvittun á spurs@spurs.is
Eftirstöðvar þarf að ganga frá eigi síðar en 15. apríl


** ath að Tottenhamklúbburinn á Íslandi er eingöngu milligönguaðili varðandi þessa ferð , þeir aðilar sem fara í þessa ferð eru á eigin vegum og þurfa að vera með allar sínar tryggingar á hreinu þar sem Tottenhamklúbbnum á Íslandi ber ekki ábyrgð á ferðarofi , seinkunum á flugi  ,frestun leiks , verkföllum flugvallastarfsmanna ,  covid-19 o.s.frv. **

ATH: AÐEINS 40 SÆTI Í BOÐI Í ÞESSA FERÐ !

Ef ekki næst næg þátttaka í þessa ferð – getur klúbburinn aflýst ferðinni og endurgreiðir þá öllum staðfestingargjald sem hefur verið greitt.

Miðakaup 2024-2025

0

Daginn

Hér að neðan er listi yfir leikdaga og dagsetningar hvenær þarf að panta á leiki í síðasta lagi.

Lokað hefur verið fyrir pantanir á fyrstu þrjá heimaleikina ( Everton / Arsenal & Brentford )
Hægt er að leggja inn pöntun á miðum á e-mailið spurs@spurs.is – við vitum svo nokkrum dögum eftir að frestur rennur út hvað við fengum mikið af þeim miðum sem pantaðir voru.

Sölugluggi 2
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 30. júlí kl. 12.00

West Ham 19.10.2024 CAT-B
Aston Villa 2.11.2024 CAT-B
Ipswich 9.11.2024 CAT-C

Sölugluggi 3
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 3. september kl. 12.00

Fulham 30.11.2024 CAT-B
Chelsea 7.12.2024 CAT-A

Sölugluggi 4
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 10. október kl. 12.00

Liverpool 21.12.2024 CAT-A
Wolves 29.12.2024 CAT-B
Newcastle 4.1.2025 CAT-A

Sölugluggi 5
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 5. nóvember kl. 12.00

Leicester 25.1.2025 CAT-C
Man. Utd 15.2.2025 CAT-A

Sölugluggi 6
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 2. janúar kl. 12.00

Man. City 25.2.2025 CAT-A
Bournemouth 8.3.2025 CAT-C
Southampton 5.4.2025 CAT-C

Sölugluggi 7
Síðasti möguleiki til að panta miða er þriðjudaginn 11. febrúar kl. 12.00

Nott. Forest 19.4.2025 CAT-B
Crystal Palace 10.5.2025 CAT-B
Brighton 25.5.2025 CAT-B

*ATH* að leikdagar á þessum leikjum eru EKKI staðfestir og gætu þeir verið fluttir v/ sjónvarpsútsendinga og eins getur þátttaka Tottenham í Evrópudeildinni flutt leiki yfir á sunnudag , ef liðið er að leika á fimmtudeginum. Svo þarf líka að hafa í huga dagsetningar á FA CUP eftir áramót – einhverjar umferðir þar eru spilaðar ofaní deildarleiki.

  • Bikarleikir 2024-2025
    Hægt er að sækja um miða á heimaleiki í bikar , með eins miklum fyrirvara og hægt er.

** Klúbburinn áskilur sér rétt að nota alla þá miða sem klúbburinn fær úthlutað á einhverja leiki fyrir hópferð/ir á vegum klúbbsins **


ATH.   Það þarf að vera membershipnúmer í klúbbnum úti í UK (með gildistíma út tímabilið) á alla sem ætla á völlinn.
Í póstinum þarf að koma fram ( fyrir alla sem þurfa miða ) :
* Fullt nafn
* Membershipnúmer  ( linkur til að gerast one hotspur member ) : https://www.tottenhamhotspur.com/fans/membership/one-hotspur/
og
https://ask.tottenhamhotspur.com/hc/en-us/articles/360001171669
Þegar greiða á fyrir membership – þarf að velja standard fee.
* Tegund miða ( Adult / Junior / Senior )
* Ósk um hólf á vellinum.

Hólf í boði fyrir stuðningsmannaklúbba :
Norðurstúka ( eina stúkan sem bíður uppá junior miðaverð )
513 / 512 / 423 / 110 / 113
Suðurstúka
453 / 451 / 323 / 257 / 258 / 250 / 251
Austurstúka
523 / 123


Hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi

0

Góðan daginn

Tottenhamklúbburinn á Íslandi hefur skipulagt fyrstu hópferð vetrarins.

Farið verður á leik Tottenham – Brentford   ,  sem er settur á laugardaginn  21. september 2024 kl. 15.00.


** ATH AÐEINS 8 SÆTI ERU ÓSELD Í FERÐINA OG LOKAÐ VERÐUR FYRIR SKRÁNINGAR ÞRIÐJUDAGINN 16.7.2024 KL 16.00 **

Ferðatilhögun:

  • Flogið út með Play föstudaginn 20. september kl. 06.40 
    Lent á Stansted flugvelli um kl. 10.40
    Flogið aftur með Play frá Stansted mánudaginn 23. september kl. 11.40
    Lent í Keflavík um kl. 13.45
    ( 20 kg farangurstaska er innifalin í flugi  )
  • Rúta til og frá flugvelli í Bretlandi 
  • Gisting í þrjár nætur á Travelodge Stratford
  • Íslensk Fararstjórn 

Verð :
74.990.-   
( við þetta verð bætist svo miði og skráning í klúbbinn úti  **ef viðkomandi er ekki þegar skráður **) 

Verð miðast við 2. í herbergi.
Einstaklingsherbergi :    Verð : 102.990.-

Þeir einstaklingar sem skrá sig í ferðina þurfa að skrá sig í Tottenhamklúbbinn á Bretlandi og senda membershipnúmerið sitt við skráningu. 
Skráning í klúbbinn úti kostar ca.     8.900.- fyrir fullorðinn.    Um 4.100 fyrir börn.
Svo þurfa allir að ganga frá greiðslu á miðum í gegnum sinn account hjá klúbbnum úti ( þegar það er búið að skrá sig og miðar koma á account )
Miðaverð er ca. 10.500.- fyrir fullorðinn.   

Til að skrá sig í Tottenhamklúbbinn :      ** ath.  ekki nota íslenska stafi **  
Hér

Til að ganga frá greiðslu á membershipgjaldi og til að borga fyrir miðann þegar hann er klár :
( Velja standard fee ) 
Hér
                             
Til að skrá sig í ferðina þarf að senda e-mail á spurs@spurs.is

Við skráningu í ferðina ,  þarf eftirfarandi að koma fram fyrir alla sem ætla í ferðina :

  •    Nafn
  •    Kennitala
  •    Heimilisfang
  •    GSM númer
  •    E-mail
  •    CRN ( Membershipnúmerið í Tottenhamklúbbnum í UK ) 
  •    Double room / Twin room  (    double room er með einu stóru rúmi / twin room með tveimur rúmum. )
  • Greiða þarf staðfestingargjald kr. 30.000.- á mann við bókun á ferð.    Eftirstöðvar greiðast svo um miðjan ágúst. 
    ( staðfestingargjald þetta fæst ekki endurgreitt nema hægt verði að fylla sætið )

Staðfestingargjaldið skal greiða inn á reikning Tottenhamklúbbsins :  0537 – 26 – 3110    ,  kt.  630103-3550  
og senda skal greiðslukvittun á
spurs@spurs.is

** ath að Tottenhamklúbburinn á Íslandi er eingöngu milligönguaðili varðandi þessa ferð , þeir aðilar sem fara í þessa ferð eru á eigin vegum og þurfa að vera með allar sínar tryggingar á hreinu þar sem það er engin kvöð á Tottenhamklúbbnum á Íslandi varðandi þessarar ferðar ( ferðarof , seinkanir á flugi ,frestun leiks , verkföll flugvallastarfsmanna , covid-19 o.s.frv. )


** ATH AÐEINS 8 SÆTI ERU ÓSELD Í FERÐINA OG LOKAÐ VERÐUR FYRIR SKRÁNINGAR ÞRIÐJUDAGINN 16.7.2024 KL 16.00 **

Stjórnin

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins 2024

0

Daginn

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins á Íslandi verður haldinn á Ölver , þriðjudaginn 14. maí 2024 , kl. 18.00

Dagskrá fundar:

1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar síðasta árs
3. Kosning stjórnar
4. Önnur mál

Eftir fund munum við svo horfa á leik Tottenham gegn Man. City.
Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að mæta og gaman væri að sjá ný andlit á staðnum. Ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn Tottenhamklúbbsins má hinn sami láta vita á e-mailið spurs@spurs.is. Nýir aðilar sem vilja leggja eitthvað á vogarskálarnar við rekstur klúbbsins eru mjög velkomnir á fundinn – margar hendur vinna létt verk.

Stjórnin

Miðakaup 2023-2024

0

Daginn

Hér að neðan eru upplýsingar varðandi miðapantanir á leiki Tottenham , tímabilið 2023-2024.

Búið er að loka fyrir pantanir á fyrstu þrjá heimaleiki liðsins.

Tottenham – Man. Utd. ( 19. ágúst )
Tottenham – Sheffield Utd. ( 16. september )
Tottenham – Liverpool ( 30. september )

Pöntunargluggi 2 Lokafrestur til að leggja inn pöntun er 14. ágúst 2023 kl. 12.00.
Mótherji Leikdagur
Fulham 21.okt ´23
Chelsea 4.nóv ´23
Aston Villa 25.nóv ´23

Pöntunargluggi 3 — Lokafrestur til að leggja inn pöntun er 12. september 2023 kl. 12.00
Mótherji Leikdagur
West Ham 5.des ´23
Newcastle 9.des ´23

Pöntunargluggi 4 — Lokafrestur til að leggja inn pöntun er 10. október 2023 kl. 12.00
Mótherji Leikdagur
Everton 23.des ´23
Bournemouth 30.des ´23
Brentford 30.jan ´24

Pöntunargluggi 5 — Lokafrestur til að leggja inn pöntun er 14. nóvember 2023 kl. 12.00
Mótherji Leikdagur
Brighton 10.feb ´24
Wolves 17.feb ´24
Crystal Palace 2.mar ´24

Pöntunargluggi 6 — Lokafrestur til að leggja inn pöntun er 9. janúar 2024 kl. 12.00
Mótherji Leikdagur
Luton 30.mar ´24
Nott. Forest 6.apr ´24

Pöntunargluggi 7 — Lokafrestur til að leggja inn pöntun er 20. febrúar 2024 kl. 12.00
Mótherji Leikdagur
Man. City 20.apr ´24
Arsenal 27.apr ´24
Burnley 11.maí ´24

*ATH* að leiktímar á þessum leikjum eru EKKI staðfestir og gætu þeir verið fluttir v/ sjónvarpsútsendingar.

  • Bikarleikir 2023-2024
    Hægt er að sækja um miða á heimaleiki í bikar , með eins miklum fyrirvara og hægt er.

** Klúbburinn áskilur sér rétt að nota alla þá miða sem klúbburinn fær úthlutað á einhverja leiki fyrir hópferð/ir á vegum klúbbsins **


ATH.   Það þarf að vera membershipnúmer í klúbbnum úti í UK ( með gildistíma út tímabilið ) á alla sem ætla á völlinn.
Í póstinum þarf að koma fram ( fyrir alla sem þurfa miða ) :
* Fullt nafn
* Membershipnúmer  ( linkur til að gerast one hotspur member ) : https://www.tottenhamhotspur.com/fans/membership/one-hotspur/
og
https://ask.tottenhamhotspur.com/hc/en-us/articles/360001171669
Þegar greiða á fyrir membership – þarf að velja standard fee.
* Tegund miða ( Adult / Junior / Senior )
* Ósk um hólf á vellinum.

Hólf í boði fyrir stuðningsmannaklúbba :
Norðurstúka ( eina stúkan sem bíður uppá junior miðaverð )
513 / 512 / 423 / 110 / 113
Suðurstúka
453 / 451 / 323 / 257 / 258 / 250 / 251
Austurstúka
523 / 123

Aðalfundur 2023 & Fundargerð

0

Daginn

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins á Íslandi verður haldinn á Ölver ,  miðvikudaginn 21. júní 2023 ,  kl. 20.00

Dagskrá fundar:

1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar síðasta árs
3. Kosning stjórnar
4. Önnur mál

Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að mæta og gaman væri að sjá ný andlit á staðnum. Ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn Tottenhamklúbbsins má hinn sami láta vita á e-mailið spurs@spurs.is. Nýir aðilar sem vilja leggja eitthvað á vogarskálarnar við rekstur klúbbsins eru mjög velkomnir á fundinn – margar hendur vinna létt verk.

Stjórnin

Tottenhamklúbburinn á Íslandi

Fundargerð:

Ársfundur haldinn á Ölver í Glæsibæ miðvikudaginn 21. júní 2023 klukkan 20.00. Mætt eru úr stjórninni Birgir Ólafsson formaður, Guðmundur Pétursson gjaldkeri, Elías Melsted, Gestur Valur Svansson og Sigrún Vatnsdal, ritari fundarins.  Til viðbótar eru 15 stuðningsmenn klúbbsins.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar

Erfitt um vik varðandi hópferðir vegna HM í Katar, engin jólaferð farin vegna þess. Ein hópferð var farin í september 2022, góð mæting.

Félagið útvegaði 220 miða á leiki síðasta ár, þar af voru 30 miðar sem fóru í hópferðina.

Klúbburinn úti búinn að gefa út að stuðningsfélög fá max 40 miða pr leik og að hægt verði að velja um tvo hólf þegar miðar eru pantaðir.

Gerðum markmið fyrir tímabilið að fá 500 skráða meðlimi. Í lok tímabils vorum við komin með 592 skráða meðlimi –  773 kröfur sendar út og 467 greiðslur komu út úr því (181 eldri meðlimir fengu líka kröfu). 72 meðlimir eru á gulu spjaldi (hafa ekki greitt félagsgjöld sl. 2 tímabil) og 16 meðlimir detta af skrá (hafa ekki greitt félagsgjöld sl. 3 tímabil).

  • Reikningar síðasta árs

Reikningar síðustu tveggja ára lagðir fram. Árið 2022 voru tekjur 572.450, gjöld 270.515 og eigið fé 2.027.987. Árið 2023 voru tekjur 3.594.162, gjöld 2.736.719 og eigið fé 2.885.439.

  • Kosning stjórnar

Lagabreyting – 7 í stjórn og 3 varamenn. Samþykkt með meirihluta.

Formaður Birgir Ólafsson

Stjórn : Guðmundur Pétursson, Elías M. Melsted, Gestur Valur Svansson    ,

Sigrún Vatnsdal Bjarnadóttir, Vernharð Þorleifsson, Frosti Viðar Gunnarsson
Varastjórn : Andri Blær Gestsson  ,Sveinn Theodórsson og Tómas Guðjónsson

  • Önnur mál

Heimsóknir Tottenham spilara til Íslands – hugsa um fjármögnunarsöfnun.

Við erum hætt að gefa út tímarit en klúbburinn úti gefur út tímarit fyrir alla heimaleiki. Setja á heimasíðu linkinn um hvernig er hægt að gerast áskrifandi.

Miðakaup rædd, allir sem versla miða á leik þurfa að vera members úti.

Árgjald Tottenhamklúbbsins

0

Nú hefur verið sent út valkrafa í heimabanka þeirra sem eru skráðir í Tottenhamklúbbinn á Íslandi og er valkrafan á eindaga 1. febrúar 2023 – mæli samt með að fólk gangi frá greiðslu sem fyrst svo það gleymist ekki. Ef einhver er ekki með valkröfu í heimabanka sínum og langar til að ganga í klúbbinn er minnsta mál að senda póst á spurs@spurs.is – þar sem nafn , kt. og heimilisfang þarf að koma fram og við komum skráningu í ferli.

Árgjaldið 2022-2023 kostar 2.800.- fyrir fullorðna. Fyrir 16-18 ára er það 1.400 og frítt fyrir yngri en 16 ára.

Nýjustu fréttirnar