Varaliðsleikur
Emil lék allan leikinn gegn Watford. Þar mátti hann Brynjari Birni Gunnarssyni. Bunji var eini eldri leikmaðurinn í okkar liði. Marney lék í sextíu mínútur en Davis var ekki í liðinu svo líklegt er að hann muni vera í hópnum gegn Charlton á miðvikudag.
Spurs-Watford 1-1
Mendes meiddur
Pedro Mendes meiddist í leik Spurs og Nottingham Forest í bikarnum í gær. Í fyrstu leit ekki út fyrir að meiðslin væru alvarleg en í dag hefur komið í ljós að hann er líklega tábrotinn og verður þ.a.l. frá keppni næstu vikurnar.
Spurs-Everton 2-1
Bikarkeppni 18 ára liða ( FA Youth Cup)
Lið Tottenham átján ára og yngri vann Everton í gærkvöldi í fimmtu umferð FA Youth Cup. Mörkin skoruðu Mills og O’Hara. Við vorum betri framan af en máttum verjast í seinni hálfleik en stóðumst þó sóknaraðgerðir Everton.
Spurs-Leicester 2-1
Varaliðsleikur
Varaliði Tottenham vann nokkuð samfærandi sigur á varaliði Leicester í gærkvöldi. Limbersky sem er í láni út tímabilið skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið og það gerði einnig El Hamdaoui og sýndi að hann gæti veitt framherjunum fjórum verðuga keppni um sæti í framlínunni.
Langþráður sigur hjá Spurs
Spurs 3-1 Portsmouth
Eftir að hafa gengið illa í deildinni síðan í desember tókst Tottenhm að sigra Portsmouth 3-1 í Úrvalsdeildinni í dag. Mörkin skoruðu þeir Mido(2) og Robbie Keane. Nokkrar breytingar voru gerðar á liðini frá síðasta leik, Edman, Kanoute og Gardner duttu út og inn komu Naybet, Mido og Reid en þeir tveir síðastnefndu léku einnig sinn fyrsta leik fyrir Spurs í dag.
Hvað er þetta með dómaranna
Bolton – Tottenham 3-1
Það er gjarnan sagt að atvik eins og það sem við lentum í á OT þegar markið var ekki dæmt jafnist út yfir lengri tíma og því sé óþarfi að gera mikið veður út af því. Það er ljóst að okkar réttlæti var ekki komið í gærkvöldi þegar við mættum Bolton. Því miður gerðist það enn einu sinni að dómarinn dæmdi sittáhvað eftir því um hvort liðið var að ræða.
Jafnt í bikarleik
WBA – Tottenham 1-1
Niðurstaðan í þessum leik varð sú sama og í deildarleiknum snemma á tímabilinu. Ég hafði vonaða að sá bati sem hefur verið á okkur nægði til að koma okkur áfram en það verður að segja að West Brom hefur verið að taka sig á eftir að Bryan Robson tók við þeim.
Tveir frá Forest
Andy Reid og Michael Dawson hafa báðir skrifað undir samning við Tottenham. Þeir koma frá Nottingham Forest. Það vill svo skemmtilega til að við lendum gegn Forest í fimmtu umferð bikarsins ef við vinnum gegn WBA þann tólfta.
Enn bætist við
Nú er búið að fá til liðsins tékkneskan markmann. Hann heitir Radek Cerny og verður 31 í febrúar. Það er ekki alveg á hreinu hvort um lánssamning er að ræða eða kaup en samningurinn er til 18 mánaða.
Tveir nýjir framherjar
Staðfest var í gærkvöldi á heimasíðu Tottenham að búið er að gera lánssamning við Róma til 18 mánaða um Mido. Þá var einnig staðfest að búið er að kaupa 21 árs hollenskan strák sem á uppruna sinn í Marokkó. Hann heitir El Hamdaoui. Hann er einnig framherji og hefur leikið með undir 21 landsliði Hollands en hefur nú ákveðið að spila fyrir Marokkó.





