Page 115

Crystal Palace – Spurs 3-0

0

Leikurinn á laugardag kom okkur aftur niður á jörðina eftir ágæta flugferð sem staðið hefur yfir frá því í nóvember. Stórt tap gegn liði sem var í sautjánda sæti fyrir leikinn sýnir okkur að enn vantar tölvert upp á að stöðugleika sé náð.

Átján ára liðið komið í fimmtu umferð

0

Átján ára lið Tottenham sló út Liverpool á Anfield í gærkvöldi í vítaspyrnukeppni eftir að leikurinn endaði 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Andy Barckam gerði mark okkar í leiknum og þess má geta að hann gerði líka sigurmark okkar í umferðinni á undan gegn Nottingham Forest.

Sóknarmaður á leiðinni

0

Tottenham hefur tilkynnt að það er í viðræðum við Egyptska sóknarmanninn Mido. Hann leikur núna með Róma en hefur lítið fengið að spreyta sig þar. Hann er 21 árs 190 á hæð.

Emil lék vel

0

Varaliðsleikur: Crystal Palace – Tottenham 1-1
Emil lék sinn annan leik með varaliði Tottenham í gærkvöldi og þá lék Simon Davies í 45 mínútur en það er hans fyrsti leikur í langan tíma eftir meiðsli og vírus sem herjaði á hann.

Ekki tókst það í þetta sinn

0

Tottenham-Chelsea 0-2
Lið Tottenham hefur sýnt áþreifanleg batamerki á undanförnum vikum. Samt erum við einhvern veginn en að bíða eftir að allt fari í fyrra horf þar sem liðið tapar samfærandi fyrir betri liðum og klúðrar málum gegn lélegri liðum.

Emil lék sinn fyrsta leik

0

Varaliðsleikur: Tottenham-Southampton 0-5
Jol byrjaði með þrem tapleikjum. Við vitum öll framhaldið. Við skulum vona að framhaldið verði svipað hjá Emil okkar Hallfreðssyni en varaliðið tapaði gegn sterku varaliði Southampton 0-5 í kvöld. Emil lék allan leikinn og átti góða fyrirgjöf í lok fyrri hálfleiks og skot skömmu síðar sem fór af varnarmanni og rétt útaf.

Ekki fyrsti dómaraskandallinn á Old Trafford

0

Man Utd 0-0 Spurs
Það virðist vera sama hvaða dómari komi að leikjum Man Utd, lánið virðist alltaf leika við þá. Þó svo að þeir hafi átt meirihluta leiksins þá verður ekki komist hjá því að líta á ákvörðun dómarans undir lok leiksins sem rán að hálfu Spurs. Man Utd áttu mun fleiri færi en Spurs í leiknum en þó tók Keane nokkrar góðar rispur, hann hafði bara engan stuðning en gerði þó sitt besta.

Davenport líklega til Southampton

0

Calum Davenport verður að öllum líkindum lánaður til Southampton út þetta tímabil, s.k. heimasíðu Tottenham. Félagið er að bíða þess að skrifstofur úrvalsdeildarinnar opni á ný á morgun til að ganga frá lánssamningnum.

Kanoute og Defoe tæpir

0

Manchester Utd – Spurs
Jermain Defoe, Fredi Kanoute og Michael Brown eru allir tæpir fyrir leikinn gegn Manchester Utd á þriðjudagskvöld. Defoe og Brown voru ekki með gegn Everton en Kanoute meiddist í þeim leik og á hann minnstan möguleika af þeim þremur að vera með á Old Trafford.

Flugeldasýning á nýjársdag

0

Spurs – Everton 5-2
Tottenham lék í dag sinn besta leik í mjög langan tíma. Margir höfðu kviðið því að mæta Everton þar sem þeir voru í fjórða sæti og höfðu átt mjög gott tímabil fram að þessu. Við höfðum þó það í bakhöndina að þeir hafa ekki unnið á WHL síðan 1985 og það breyttist ekki í dag. Ekki batnaði ástandið þegar tilkynnt var að þeir tveir leikmenn okkar sem hafa verið í hvað bestu formi unanfarið þeir Defoe og Brown voru ekki.

Nýjustu fréttirnar