Page 116

Jafnt gegn Crystal Palace

0

Spurs-Crystal Palace 1-1
Tíunda mark Defoe í deildinni dugði ekki til að landa sjötta sigrinum í röð. Andy Johnson náði að jafna með skoti sem fljótt á litið hefði átt að hafna í höndum Robinson en hann virtist misreikna hann og var því of seinn í hann. En það er erfitt að átta sig á því.

Emil heldur til London

0

Á morgun þriðjudag heldur Emil Hallfreðsson til London til að ganga í raðir Tottenham Hotspur. Af því tilefni hittum við tveir úr stjórninni Emil til að óska honum góðs gengis og fræða hann um klúbbinn okkar og fleira sem gott er að hafa í veganesti á þessum slóðum.

Sigurgangan heldur áfram

0

Norwich 0-2 Spurs
Tottenham tókst að vinna sinn fimmta sigur í röð í dag þegar Norwich voru lagðir að velli, 2-0, með mörkum frá Robbie Keane og Michael Brown í seinni hálfleik. Jermain Defoe var ekki í byrjunarliði Spurs en það hafði ekki teljandi áhrif á leik leikmanna Spurs í dag.

Fjórði sigurinn í röð

0

Spurs 5-1 Southampton
Loksins tókst Spurs að sigra fjóra leiki í röð þegar liðið sigraði Southampton 5-1 á White Hart Lane í dag. Mörkin skoruðu Defoe(3), Kanoute og Keane, sem kom inn á sem varamaður seint í leiknum. Gerðar voru þrjár breytingar á byrjunarliðinu, Gardner, Ziegler og Defoe komu inn í stað Naybet, sem er meiddur, Mendes og Keane.

Burch bjargaði WH í leik varaliðanna

1

Varaliðsleikur: West-Ham – Spurs 2:2
Þetta var svolítið skrýtinn leikur því í marki West Ham stóð Rob Burch varaliðsmarkmaður Tottenham, en hann hafði rétt áður verið lánaður til West Ham vegna meiðsla markmanna þeirra. Yeates og Slabber komu tuðrunni fram hjá félaga sínum í markinu en klaufaskapur í vörn Tottenham í seinni hálfleik varð til þess að þeir jöfnuðu.

Emil á leið í Tottenham

0

Greint var frá því seinnipartinn í gær að FH og Tottenham hafi náð samkomulagi um kaup Tottenham á Emil Hallfreðssyni. Hann mun vera með í höndunum uppkast að samningi sínum og segist í blöðum í morgun sáttur við hann.

Þriðji sigurinn – Man. City-Spurs 0-1

0

Ég setti það á síðuna eftir þrjá fyrstu leiki Jol í deildinni að hann hefði sett met með því að tapa þeim öllum. Nú eru aðrir þrír leikir búnir og þeir hafa allir unnist þannig að hann hefur heldur betur lagað stöðuna. Megi það lengi vara.

Varaliðið í vanda – Arsenal-Spurs 0-1

0

Jæja það kom að því að sigurgöngu varaliðsins lyki. Tap fyrir Arsenal er staðreynd. Við áttum þó slatta af færum í leiknum að því er virðist en náðum ekki að nýta þau. Davenport lék sinn fyrsta varaliðsleik í kvöld.

Smá tíra – Blackburn-Spurs 0-1

0

Jæja það lyftist aðeins á manni brúninn við sigur okkar manna í dag. Þar með er Tottenham komið á sigurbraut því þetta er annar leikurinn í röð sem við vinnum í deildinni. Megi fleiri sigrar fylgja í kjölfarið. En að leiknum.

Lengi getur vont versnað

0

Það er í raun ekki hægt að afsaka með nokkru móti frammistöðu leikmanna Tottenham í gærkvöldi þegar þeir létu skólastráka taka sig í bakaríið í deildarbikarnum. Það vantaði ekki að við réðum lögum og lofum á vellinum en bara gátum ekki skorað eins og svo oft í leikjum í vetur. Þó Kanoute hafi verið einstaklega klaufskur bæði í því að fá boltann í hendina og svo að láta verja hjá sér vítið þá átti þessi leikur aldrei að fara fram yfir þær 90 mínútur plús viðbótartíma. Þá sök bera allir leikmenn liðsins með Kanoute. Defoe gerði mark okkar á 108 mínútu. Vítinn fóru þannig: Defoe skoraði, Carrick skoraði, Kanoute varið, Brown yfir, Ziegler skoraði.

Nýjustu fréttirnar