Page 5

Tottenhamklúbburinn – árgjald

0

Daginn

 

Nú fer að líða að lokum tímabilsins og mun Tottenhamklúbburinn senda blað ásamt gjöf þegar að tímabili lýkur til félagsmanna sinna eins og hefur tíðkast í gegnum tíðina.

 

Það er verið að ganga frá gjöfinni og því skorar Tottenhamklúbburinn á þá sem ekki hafa gengið frá greiðslu árgjalds og hafa áhuga á að fá veglega gjöf ásamt blaði í lok tímabils að greiða árgjaldið eða skrá sig í klúbbinn.

Sumir gætu verið með ógreidda valkröfu í heimabanka sem hægt er að greiða eða þá að skrá sig í klúbbinn á heimasíðu klúbbsins  :  https://spurs.is/klubburinn/nyskraning-i-klubbinn

Einnig er hægt að  senda e-mail á spurs@spurs.is þar sem koma þarf fram nafn , kennitala og heimilisfang og mun valkrafa birtast í heimabanka hjá viðkomandi.

 

Árgjald Tottenhamklúbbsins á Íslandi er einungis 2.500.-

 

COYS

 

Kv

 

Stjórnin

Capital One Cup Final

0

Tottenham mun leika í úrslitaleiknum í Capital One Cup á Wembley þann 1. mars næstkomandi.
Mótherjar Tottenham verða Chelsea,   sem eru efstir í úrvalsdeildinni um þessar mundir og á svakalegri siglingu undir stjórn Mourinho.

Búast má við svakalegum leik þar sem ekkert verður gefið eftir….

Aðdáendur Tottenham á höfuðborgarsvæðinu ætla að hittast á Ölver og gera sér glaðan dag.   
Tilboð verða á barnum á mat og drykk fyrir þá sem verða merktir Tottenham á einhvern hátt.

Vonumst við til að sjá sem flesta Spursara á Ölver þann 1. mars til að horfa á leikinn í góðri stemningu.
Leikurinn hefst kl. 16.00 ,    sunnudaginn 1. mars.

Ef Tottenhamaðdáendur á landsbyggðinni hafa ákveðið einhverja staði til að hittast á og horfa á leikinn ,  þá má endilega senda línu á spurs@spurs.is með upplýsingum um það og við komum því áleiðis.

Aftur niður jörðina eftir heimsókn á Anfield

0

Tottenham heimsótti Anfield í kvöld, þar sem að Liverpool tók á móti. Í síðustu 4 viðureignum þessara liða, hafði Tottenham veitt svo litla sem enga mótspyrnu. Það var annað upp á teningnum í kvöld, þó að úrslitin hafi ekki fallið okkar mönnum í hag.

THFC: Lloris; Walker, Dier, Vertonghen, Rose; Bentaleb, Mason; Lamela, Dembele, Eriksen; Kane

LFC: Mignolet, Can, Skrtel, Sakho, Moreno, Gerrard, Henderson, Markovic, Coutinho, Ibe, Sturridge

Liverpool var betri aðillinn í byrjun leiks og okkar menn voru alveg hrikalega mistækir, en þar fóru fremstir í flokki miðjumenn okkar, sem virtust reyna sitt besta í að afhenda Liverpool boltan og tvisvar í formi stungusendingar inn fyrir vörnina. Leikmenn Spurs virkuðu einfaldlega þreyttir eftir sigurinn á Arsenal, sem var spilaður á mjög háu „tempói“ auk þess að Anfield var eins og kartöflugarður í kvöld.

Andstæðingarnir skoruðu fyrst markið, en það kom eftir klaufaskap á miðjunn og endaði með mistökum hjá okkar besta leikmanni Hugo Lloris, en hafði auðveldlega getað varið lélegt skot Markovic, en hann virtist þó eitthvað vera að kenna vellinum sem er skiljanlegt.

Tottenham tók heldur betur við sér eftir þetta og enginn annar en Harry Kane jafnaði leikinn eftir frábært samspil Eriksen og Lamela. Og þannig var staðan þegar flautað var til leikhlés.

Seinni hálfleikur var svipaður og byrjunin á þeim fyrri, en leikmenn Spurs voru ekki að eiga sinn besta dag, fyrir utan leikmenn eins og Dembéle, Lamela og Kane. Leikmaður eins og Danny Rose var hins vegar ekki á sínum degi og braut klauflega af sér innan vítateigs, sem dæmt var á og Steven Gerrard afgreiddi vítaspyrnuna þó með viðkomu Hugo í markinu 2-1 var staðan.

Okkar menn tóku aftur við sér og eftir aukspyrnu Eriksen, fékk Kane boltan sem sendi hann fyrir á Dembéle sem magaði boltan yfir línuna. 2-2. Eftir þetta dó leikurinn frekar og bæðu lið virtust sætta sig við jafntefli. En svo var það enginn annar en Mario Balotelli sem ákvað auðvitað að skora sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu og það gegn Tottenham, týpískt. 

Jafntefli hefði verið sanngjörn niðurstaða, en lítið hægt að kvarta svo sem. Þetta er ungt lið og ég er sannfærður um að ef það hefðu liðið aðeins fleiri dagar frá seinasta leik, hefðu þeir sigrað þá. Því Tottenham virðist vera betra lið en Liverpool. Næsti leikur er gegn Fiorentina á fimmtudag í næsta viku og svo kemur fljótlega að úrslitaleiknum, þannig að við höfum það þokkalegt þrátt fyrir úrslit kvöldsins.

 

Maður leiksins: Mousa Dembéle 8,5

Harry Kane hetjan í NLD

0

Tottenham tók á móti erkióvininum, Arsenal í hádeginu á laugardaginn. Fyrir leik voru Arsenal taldir líklegri aðillinn eftir gott gengi þeirra undanfarið, en Spurs hafði þó líka gengið mjög vel og enginn ástæða fyrir Spursara að vera hræddir fyrir leik. Síðustu þrír leikir gegn Arsenal höfðu endað illa, en Pochettino hefur heldur betur tekið til hendinni í vetur og Spurs staðið sig ágætlega gegn betri liðum deildarinnar.

Leikurinn fór vel af stað hjá Spurs, sem voru mikið með boltann, en planið hjá Arsene Wenger og hans mönnum var augljóslega að verjast og sækja hratt líkt og þeir gerðu í sigri þeirra gegn Manchester City á Etihad stadium. Þessi leikaðferð heppnaðist svo þegar Mesut Özil skoraði eftir gott hlaup hjá Welbeck sem fór illa með Danny Rose og sendi knöttinn á Giroud sem átti misnotað skot sem endaði hjá Özil sem stýrði boltanum inn. Mjög svekkjandi byrjun, en leikmenn og áhorfendur létu þetta ekki trufla sig um of og héldu áfram að berja á Arsenal með mikilli pressu. Leikar stóðu þó ennþá 0-1 þegar komið var af hálfleik, ótrúlega óverðskuldað og virtis leikplan Arsene Wenger vera að virka.

Tottenham hélt áfram að sækja í seinni hálfleik og það hlaust árangur fljótt, en þá nýtti gulldrengurinn Harry Kane sér hrikalega varnarvinnu Arsenal eftir hornspyrnu og laumaði sér á fjær stönginni og stýrði boltanum í netið eftir að Ospina markmaður Arsenal hafði varið skalla frá leikmanni Tottenham sem barst til Kane. Pressa Spurs hélt áfram og stuðningsmenn Spurs hvöttu liðið áfram af miklu kappi. Tottenham var á heildina litið 63 % með boltann, sem er gríðar gott gegn skyttunum sem eru þekktir fyrir að halda boltanum vel. Einnig átti Tottenham margfalt fleiri skot.
Þegar líða var farið að lokum á 86 mínútu leiksins, fékk uppalinn drengur að nafni Bentelab boltann á vinstri kantinum sér annan uppalinn gulldreng í vítateignum og á þessa unaðslegu fyrirgjöf inn á teiginn. Gullkálfurinn Harry Kane býr sér til pláss og þarf aðeins að beygja sig aftur, en nær að hitta boltan svona dásamlega með kollinum og boltinn svífur í fallegum boga yfir Ospina markmann Arsenal og Harry Kane og stuðningsmennir fyrir löngu sturlaðir af fögnuði áður en boltinn endar í netinu. Unaðslegt.

Ótrúlega góður og líklega besti leikur Spurs í vetur, og ekki hægt að taka neitt neikvætt úr leiknum. Leikmennirnir voru frábærir og stuðningsmennirnir hafa aldrei verið betri. Pochettino virðast hafa náð að fá það besta úr leikmönnum Spurs með góðum æfingum og tekist að sameina stuðningsmenn Spurs aftur, eftir tvö ár þar sem stór hluti virtist ekki vera sáttir með klúbbinn, þjálfaran, liðið eða einstaka leikmenn. 

Núna virðist vera gríðarlega bjartir tímar framundan hjá klúbbi sem er vel rekinn, með lið sem er byggt upp á breskum og uppöldum leikmönnum.

Lloris hetjan gegn Palace

0

Tottenham gerði 0-0 jafntefli við Crystal Palace á White Hart Lane í dag í leik þar sem frammistaða Spurs var langt frá því sem getur talist ásættanlegt á heimavelli gegn liði sem á að sigra. Hugo Lloris var enn eina ferðina maður leiksins og átti nokkrar frábærar markvörslur sem héldu Spurs inni í leiknum. Tvær breytingar voru á byrjunarliðinu frá síðasta leik, Soldado og Dier komu inn fyrir Lennon og Chiriches. Eftir leikinn talaði Pochettino um að leikmenn hefði vantað ferskleika í leiknum, enda liðið að leika 3 leikinn á 6 dögum.

Marktækifæri voru ekki mörg í leiknum og þau bestu féllu í skaut Palace, en Lloris kom í veg fyrir að þeir tæku 3 stig með sér til baka á Selhurst Park. Mikið mun mæða á liðinu áfram en framundan er leikur í Evrópu á fimmtudag og síðan deildarleikur á sunnudag með deildabikarleik í framhaldinu á miðvikudaginn eftir það. Ef liðið ætlar sér að ná góðum úrslitum úr þessu stífa prógrammi sem framundan er, þarf þjálfarinn að halda vel á spöðunum og hvíla leikmenn reglulega. Annars er virkileg hætta á því að lykilmenn verði útbrunnir fyrir jólavertíðina sem er þétt sem endranær.

Leikurinn í dag var vissulega vonbrigði fyrir stuðningsmenn Spurs, en liðið var litlaust og augljóslega örlítið þreytt eftir erfiða viku. Nú hafa menn tækifæri til að kasta mæðunni og safna kröftum fyrir komandi átök. Jólavertíðin mun segja okkur ýmislegt um þennan leikmannahóp og um Pochettino sem þjálfara. Þó að starf hans sé ekki í hættu er krafa frá stuðningsmönnum að liðið fari að sýna hvað í þeim býr sem fyrst. #COYS

Liðið: Lloris; Dier, Fazio, Verthonghen, Davies; Bentaleb, Mason(Paulinho); Eriksen, Kane, Lamela(Chadli); Soldado(Lennon)

Skráningar- leikur – vinningshafar

0

Uppfært 24.12

Sigurvegarar í skráningarleik Tottenhamklúbbsins á Íslandi.

Aðalvinningur ,  sæti í hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi í vor.
  – Árni Stefán Guðjónsson ,    021286-xxxx

Aukavinningar
 – Pizzuveisla : Þorsteinn Ingólfsson  ,   190348-xxxx
 – Flíspeysa : Eggert Thomas Nielsen ,  170197-xxxx

Tottenhamklúbburinn óskar sigurvegurum til hamingju.

 Vinningshafar eru beðnir að hafa samband við klúbbinn ,   spurs@spurs.is

Skráningarleikur Tottenhamklúbbsins á Íslandi.

Allir sem hafa skráð sig í klúbbinn og greitt árgjaldið fyrir 2014-2015 eiga þess kost að vinna sæti í hópferð Tottenhamklúbbsins í vor.  Sæti fyrir 1 og er miðað við að sigurvegari verði í tveggja manna herbergi.
Heildarupphæð vinnings : 83.990.-
Hægt er að skrá sig í klúbbinn með að senda e-mail á spurs@spurs.is þar sem þarf að koma fram:

  • Nafn
  • Kennitala
  • Heimilisfang

Árgjaldið í Tottenhamklúbbinn á Íslandi eru 2.500.-
Mun þá birtast valkrafa í heimabanka viðkomandi.

Einnig er hægt að millifæra beint á Tottenhamklúbbinn ,   kr. 2.500.-  á reikning : 0537 – 26 – 3110  kt. 630103-3550.
Senda verður þá greiðslukvittun á spurs@spurs.is
Ef greitt er fyrir annan en þann sem borgar,   þarf að setja kennitölu viðkomandi í tilvísun.

Dregið verður á Þorláksmessu ( 23. Desember ) og vinningshafi tilkynntur á Aðfangadag ( 24. Desember ).  Allar upplýsingar um hópferðina er að finna hér

Dregnir verða út 2 aukavinningar úr greiddum árgjöldum :
a) Gjafabréf að verðmæti 15.000.-  á Pizzustaðnum Hverfisgötu 12 í Reykjavík
b) Flíspeysa merkt Tottenham að verðmæti 15.000.-

Ef vinningshafi hefur þegar skráð sig í ferðina og verður dreginn út , mun hinn sami fá skráningargjald sitt endurgreitt og frítt í ferðina.

Lloris hetjan gegn Palace

0

Tottenham gerði 0-0 jafntefli við Crystal Palace á White Hart Lane í dag í leik þar sem frammistaða Spurs var langt frá því sem getur talist ásættanlegt á heimavelli gegn liði sem á að sigra. Hugo Lloris var enn eina ferðina maður leiksins og átti nokkrar frábærar markvörslur sem héldu Spurs inni í leiknum. Tvær breytingar voru á byrjunarliðinu frá síðasta leik, Soldado og Dier komu inn fyrir Lennon og Chiriches. Eftir leikinn talaði Pochettino um að leikmenn hefði vantað ferskleika í leiknum, enda liðið að leika 3 leikinn á 6 dögum.

Marktækifæri voru ekki mörg í leiknum og þau bestu féllu í skaut Palace, en Lloris kom í veg fyrir að þeir tæku 3 stig með sér til baka á Selhurst Park. Mikið mun mæða á liðinu áfram en framundan er leikur í Evrópu á fimmtudag og síðan deildarleikur á sunnudag með deildabikarleik í framhaldinu á miðvikudaginn eftir það. Ef liðið ætlar sér að ná góðum úrslitum úr þessu stífa prógrammi sem framundan er, þarf þjálfarinn að halda vel á spöðunum og hvíla leikmenn reglulega. Annars er virkileg hætta á því að lykilmenn verði útbrunnir fyrir jólavertíðina sem er þétt sem endranær.

Leikurinn í dag var vissulega vonbrigði fyrir stuðningsmenn Spurs, en liðið var litlaust og augljóslega örlítið þreytt eftir erfiða viku. Nú hafa menn tækifæri til að kasta mæðunni og safna kröftum fyrir komandi átök. Jólavertíðin mun segja okkur ýmislegt um þennan leikmannahóp og um Pochettino sem þjálfara. Þó að starf hans sé ekki í hættu er krafa frá stuðningsmönnum að liðið fari að sýna hvað í þeim býr sem fyrst. #COYS

Liðið: Lloris; Dier, Fazio, Verthonghen, Davies; Bentaleb, Mason(Paulinho); Eriksen, Kane, Lamela(Chadli); Soldado(Lennon)

Biðin heldur áfram

0

Bið Tottenham eftir sigri á Stamford Brigde heldur áfram en leikur liðanna í kvöld endaði með 3-0 sigri heimamanna. Sigur Chelsea var aldrei í hættu eftir að þeir skoruðu fyrsta markið en fram að því hafði leikurinn verið frekar jafn og Tottenham átt betri færi, m.a. átti Harry Kane skalla í slánna. Kane var enn og aftur besti maður Spurs í leiknum og hefur frammistaða hans fyrir framan Roy Hodgson landsliðsþjálfara vakið athygli. Kane leiddi sókn Spurs einn í þessum leik en Roberto Soldado hóf leikinn á varamannbekknum þrátt fyrir frammistöðu gegn Everton.

Spurs léku góðan fótbolta á köflum án þess að skapa sér of mörg góð færi. Chelsea áttu betri færi en þau komu nær undantekningalaust eftir klaufaskap í vörn Spurs frekar en eftir frábært spil heimamanna. Staðan var 2-0 í hálfleik en mörkin tvö komu með litlu millibili um miðjan hálfleikinn, bæði eftir mistök í vörn Spurs. Vlad Chiriches var veikur hlekkur í stöðu hægri bakvarðar og bíða menn spenntir eftir því að Kyle Walker komi aftur inn í liðið eftir langvarandi meiðsli.

Chelsea bættu þriðja markinu við í seinni hálfleik, eftir að Spurs höfðu átt góðan kafla án þess að skapa sér alvöru marktækifæri. Þó að leikurinn hafi tapast 3-0 er engin ástæða til að hengja haus. Leikið var gegn langbesta liði Englands um þessar mundir á þeirra heimavelli. Næsti leikur er gegn Crystal Palace á WHL á laugardag og er full ástæða til að vænta góðrar frammistöðu og þriggja stiga þar. Leikur liðsins fer hægt batnandi og er mikill munur á líkamstjáningu leikmanna nú miðað við lok síðasta tímabils þegar Tim Sherwood var löngu búinn að missa traust leikmannanna. Þessi hópur vill spila fyrir þjálfarann og hef ég fulla trú á liðið bæti sig jafnt og þétt þegar líður á leiktíðina. #COYS

Lið Spurs: Lloris, Vlad, Fazio, Vertonghen, Davies; Mason(Paulinho), Bentaleb; Lennon(Chadli), Eriksen, Lamela(Soldado); Kane

Vinnusigur gegn Everton

0

Tottenham unnu virkilega góðan baráttusigur á Everton á White Hart Lane í gær, 2-1 með mörkum frá Christian Eriksen og Roberto Soldado en Kevin Mirallas skoraði mark Everton. Leikur Spurs var á köflum frábær gegn Evertonliði sem er beinn keppinautur Spurs í deildinni.

Everton hófu leikinn betur og skoruðu fyrsta markið snemma leiks eftir að Spurs hafði ekki tekist að hreinsa aukaspyrnu almennilega. Frábært skot frá Mirallas sem var gjörsamlega óverjandi fyrir Lloris í markinu. Skömmu eftir markið snéru Spurs við blaðinu og settu allt annað tempo í sinni leik. Liðið fór að spila af mun meiri ákefð og minnti spilamennskan á það sem Pochettino hafði hjá Southampton. Jöfnunarmarkið kom um 10 mínútum eftir mark Everton en það skoraði Christian Eriksen eftir frábært hlaup frá manni leiksins Harry Kane.

Markið sem síðar átti eftir að reynast sigurmarkið kom í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Harry Kane vann boltann frábærlega og Aaron Lennon, sem átti góðan leik, renndi boltanum á Roberto Soldado sem skoraði við gríðarlegan fögnuð áhorfenda á WHL. Vonandi verður þetta markið sem kveikir í Spánverjanum því hann er frábær markaskorari, það er ljóst.

Síðari hálfleikurinn var tíðindalítill en Everton voru meira með boltann án þess að skapa sér mörg færi. Leikurinn veitir Spurs von um að betri tímar séu handan við hornið en ef liðið leikur líkt og gegn Everton er ekkert að óttast. Næsti leikur gegn Chelsea á Stamford Bridge mun þó sýna okkur svart á hvítu hvar liðið stendur.

Hópferð vor 2015

0

Daginn

 

Þá er komið að seinni hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi ,  tímabilið 2014-2015.

Uppselt hefur verið í síðustu ferðir klúbbsins og færri komist að en vilja,  enda mjög gott verð á þessum hópferðum.

Fyrirhuguð hópferð verður í mars og farið verður á leik Tottenham – Leicester.

Verðið á þessari ferð er einstaklega gott og verður ekki gert ráð fyrir öðru en að það seljist hratt upp í þessa ferð eins og venjan hefur verið.

**  Þessi ferð er tilvalin Jólagjöf fyrir Tottenhamaðdáendur og er ekkert mál að útvega gjafabréf sé óskað eftir því  **

 

Ferðatilhögun er eftirfarandi :

 

Tottenham – Leicester
White Hart Lane  ,   laugardaginn 21. mars.    ( ** einhverjar líkur á því að leikur  verði fluttur á sunnudag ,  100 % ef Tottenham kemst í 16-liða úrslit Evrópudeildar ** )

 

FLUG

KEF – LONDON GATWICK            Föstudagur 20. mars kl. 07.00  lent úti kl. 9.55                        WOW Air

LONDON GATWICK – KEF             Mánudagur 23. mars  kl. 19.40 heimkoma kl. 22.50              WOW Air
Innifalið er 20kg taska báðar leiðir ásamt 5kg handfarangri.

GISTING

Travelodge London Stratford í þrjár nætur    ( án morgunmats )

Full English morgunverðarhlaðborð í boði á morgnana á £ 7.65 – þarf ekki að panta fyrirfram.

Stílhreint og einfalt hótel í Stratford,  nálægt Ólympíusvæðinu í London.

Veitingastaður / Bar á hótelinu opinn allan sólarhringinn  – hér er týpískur matseðill fyrir Travelodge ( getur verið smá breytilegur milli hótela )  – http://www.travelodge.co.uk/assets/img/bar_cafe/bar_cafe_menu.pdf

Nokkura mínútna gangur á Stratford stöðina

Central Line í Underground beint inn í miðbæ London – Oxford Circus  ( 15 mín lestarferð )

Westfield Shopping Centre er þarna rétt hjá þar sem eru yfir 300 verslanir og 70 veitingastaðir – ásamt kvikmyndahúsi og spilavíti.

http://uk.westfield.com/stratfordcity/

Umsögn gesta á Tripadvisor um hótelið : 
http://www.tripadvisor.com/Hotel_Review-g186338-d2554880-Reviews-Travelodge_London_Stratford-London_England.html

 

RÚTA

Rúta til og frá flugvelli í London

 

MIÐI + MEMBERS

Miði á leikinn á langhlið ( Austur stúka )  ásamt skráningu í klúbbinn úti 

 

ÍSLENSK FARARSTJÓRN

 

 

Verð :        83.990.-    Miðað við 2 í herbergi

Verð miðast við meðlimi Tottenhamklúbbsins á Íslandi sem greitt hafa árgjaldið 2014-2015. 

Kr. 2.500.- bætist við verð þeirra sem EKKI hafa greitt árgjald Tottenhamklúbbsins á Íslandi fyrir tímabilið 2014-2015.

 
Verð fyrir einstaklingsherbergi er
99.990.-

Möguleiki er á þriggja manna herbergi á meðan slík eru til en verðið fyrir þriggja manna herbergi er kr. 79.990.-á mann.

 

·         Við skráningu í ferðina ,  þarf eftirfarandi að koma fram fyrir alla sem ætla í ferðina : Senda skal tölvupóst á spurs@spurs.is við skráningu.

o   Nafn

o   Kennitala

o   Heimilisfang

o   GSM númer

o   E-mail

o   Family Room ( Gistirými fyrir 3 ) / Double room / Twin room  (    double room er með einu stóru rúmi / twin room með tveimur rúmum. )

·      Greiða þarf staðfestingargjald kr. 25.000.- á mann við bókun á ferð.    Eftirstöðvar greiðast svo í kringum miðjan febrúar. 
( staðfestingargjald þetta fæst ekki endurgreitt nema hægt verði að fylla sætið )

Staðfestingargjaldið skal greiða inn á reikning Tottenhamklúbbsins :  0537 – 26 – 3110    ,  kt.  630103-3550  
og senda skal greiðslukvittun á
 spurs@spurs.is

·        Þeir sem eru þegar skráðir sem meðlimir Tottenhamklúbbsins í Bretlandi borga sem nemur 8.000.- minna   fyrir  ferðina. Gefa þarf þá upp númer meðlimakorts við skráningu.

·        Tottenhamklúbburinn mun bjóða uppá það að greiða staðfestingargjald og eftirstöðvar með kreditkorti.   Kostnaður vegna þess er 2 %  (  500 kr fyrir staðfestingargjaldið og ef eftirstöðvar eru 58.990 , þá er kostnaður þar 1.200.- )    Senda þarf þá kortanúmer með bókun.

 

·        Hægt er að kaupa gjafabréf hjá einhverjum stéttarfélögum frá WOW air sem hægt er að nota í ferðina.   Gjafabréf þessi eru seld af stéttarfélögum fyrir lægri pening en upphæð þeirra er  t.d. er hægt að kaupa gjafabréf að verðmæti 25.000 hjá VR ,  en aðeins er greitt 17.000.- fyrir slíkt gjafabréf ,   Þannig að með slíkum gjafabréfum getur fólk lækkað ferðakostnaðinn.  Mæli eindregið með því að fólk hafi samband við sín stéttarfélög og ath. hvort þau séu að selja gjafabréf frá WOW.
Stéttarfélög sem vitað er að bjóða uppá gjafabréf hjá WOW:

o   VR

o   Félag Íslenskra hjúkrunarfræðinga

o   Kennarasamband Íslands

·         Tottenhamklúbburinn áskilur sér rétt til að fella niður þessa ferð ef næg þátttaka fæst ekki.    Staðfestingargjald uppá kr. 25.000.- verður þá endurgreitt til þeirra sem hafa greitt það.

 

Kv

Stjórnin

Nýjustu fréttirnar