Tottenham lék í gær við QPR á heimavelli og sigruðu leikinn 2-1. Mörk Tottenham skoruðu Defoe og hitt var sjálfsmark hjá QPR. Sigurinn var langt í frá sannfærandi, en liðið var á hælunum allan fyrri hálfleik og fengu vart færi í hálfleiknum. QPR leiddi í leikhléi 0-1 með marki Bobby Zamora. Brad Friedel kom aftur í markið og stóð í ströngu á milli stanganna og sá til þess að forysta QPR var bara eitt mark í hálfleik.
AVB gerði breytingu á liðinu í hálfleik sem átti eftir að snúa leiknum algjörlega. Hann tók Gylfa útaf og setti Caulker inn í vörnina, Vertonghen fór í vinstri bak og Bale fór á kantinn, en Bale spilaði sem bakvörður í fyrri hálfleik.
Tottenham tók öll völd á vellinum í síðari hálfleik og náðu loks að jafna leikinn á 60. Mínútu þegar Caulker skallaði hornspyrnu í átt að markinu og boltinn fór í bakið á Faurlin leikmanni QPR og af honum netið. Aðeins um mínútu síðar komst Tottenham í 2-1 þegar Defoe skoraði af harðfylgi. Tottenham vann þá boltann á miðjum sínum vallarhelming, boltinn barst á Vertonghen sem brunaði upp völlinn og Tottenham skyndilega komnir í mjög vænlegt upphlaup 3 á móti tveimur, Verthongen lagði boltann til vinstri á Bale þegar upp að vítateig var komið og Bale lét vaða, en Cesar markvörður QPR varði mjög vel og boltinn fór í slánna og út, og þar mætti Defoe í frákastið og kláraði vel.
Tottenham voru líklegri til að bæta við þriðja markinu það sem eftir leið leiks, en Cesar í marki QPR átti fínan síðari hálfleik og hélt sínum mönnum inní leiknum allt til enda.
Lokatölur 2-1 í annars mjög sveiflukendum leik þar sem QPR átti fyrri hálfleikinn og Tottenham þann síðari. En þrjú stig í hús er það sem mestu máli skiptir og hefur liðið nú unnið tvo leiki í röð í deildinni.
Lið Tottenham í leiknum í gær.
Friedel – Walker – Gallas – Vertonghen – Bale – Lennon ( Townsend 90 ) – Sandro – Dembele – Gylfi ( Caulker 46 )- Dempsey ( Huddlestone 88 ) – Defoe
Ónotaðir varamenn : Lloris – Dawson – Falque – Mason
Tölfræði úr leiknum :
Með boltann
Tottenham 52 % QPR 48%
Skot / á ramman :
Tottenham 18 / 14 QPR 9 / 6
Hornspyrnur
Tottenham 10 QPR 9









