Hópferð Tottenhamklúbbsins – Nóvember 2026

0
10

Daginn  
Þá er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi tímabilið 2026-2027

Farið verður á leik Tottenham – Ipswich sem verður á Tottenham Hotspur Stadium,  
laugardaginn 21.  nóvember 2026 , kl. 15.00
** Það á eftir að velja sjónvarpsleiki fyrir þessa umferð – leiktími gæti breyst **

Svo er tilvalið að nýta tækifærið og versla nokkrar jólagjafir í Westfield Verslunarmiðstöðinni sem er í göngufæri við hótelið.


ATH: AÐEINS 30 SÆTI Í BOÐI Í ÞESSA FERÐ


Ferðaupplýsingar :

* Flug út með EasyJet – fimmtudaginn 19. nóvember  14:15 , lending á London Gatwick  kl. 17:25.

* Flug heim með EasyJet frá London Luton mánudaginn 23. nóvember kl. 15:35 og lent í Keflavík kl. 18:45
(innifalið í flugi er innritaður farangur 23 kg + lítil handfarangurstaska að hámarki í stærð 42 x 32 x 25 cm ( 10kg ))

* Gisting á fínu hóteli í Stratford í fjórar nætur , Ibis – Stratford  m/morgunverði.      Hótelið er í nokkurra min. göngufjarlægð frá einni stærstu verslunarmiðstöð í London ,  Westfield https://uk.westfield.com/stratfordcity  –   einnig er stutt að ganga í underground / lestar á Stratford Station.
Upplýsingar um hótel : https://all.accor.com/hotel/3099/index.en.shtml?utm_campaign=seo+maps&utm_medium=seo+maps&utm_source=google+Maps

* Rúta til og frá flugvelli  ( ca. 2 klst rútuferð frá flugvelli 90 mín að flugvelli á heimleið )

* Íslensk fararstjórn

Verð : 106.990.- á mann ( miðað við 2 í herbergi )
( Verð í einstaklingsherbergi er 157.990.- )
Þeir aðilar sem ætla í hópferðina , þurfa að sjá sjálfir um skráningu í Tottenham klúbbinn í UK ( One Hotspur Member ) ásamt því að ganga frá greiðslu á miða þegar miði er klár.
Verð ( ca. ) fyrir skráningu í klúbbinn í UK og miða á leikinn :
Skráning / Miði  ( * ekki víst að við fáum sæti þar sem senior/junior miðar í boði )
Fullorðinn : 8.600 / 10.300 = 18.900.-
Eldri borgari : 4.500 / 7.700 =12.200.-
Börn : 4.500 / 5.200 = 9.700.-

Til að búa til account hjá klúbbnum í UK – ýta 
hér og fylla allt út.

Hér er hægt að skrá sig í Tottenhamklúbbinn í UK : https://www.tottenhamhotspur.com/fans/membership/one-hotspur/
Velja One Hotspur eða One Hotspur +


Til að skrá sig í ferðina þarf að senda e-mail á spurs@spurs.is og gefa eftirfarandi upplýsingar um þann aðila eða þá sem vilja skrá sig í ferðina :
* Nafn / Nöfn
* Kt
* Heimilisfang/föng + póstnr.
* GSM númer
* E-mail fyrir alla aðila
* Twin room / Double room
* CRN – membershipnúmerið sem viðkomandi fær við skráningu í Tottenhamklúbbinn í UK – ekki er nauðsynlegt að vera með þetta númer við skráningu í ferðina – en það þarf að senda þetta númer fljótlega eftir skráningu ( fös. 21. ágúst 2026 í síðasta lagi )

Greiða þarf staðfestingargjald kr. 50.000.- pr persónu við skráningu í ferðina  – með því að millifæra á reikning Tottenhamklúbbsins á Íslandi  :  0537 – 26 – 3110  , kt. 630103-3550 og senda skal kvittun á spurs@spurs.is
Eftirstöðvar þarf að ganga frá eigi síðar en 5. nóvember


** ath að Tottenhamklúbburinn á Íslandi er eingöngu milligönguaðili varðandi þessa ferð , þeir aðilar sem fara í þessa ferð eru á eigin vegum og þurfa að vera með allar sínar tryggingar á hreinu þar sem Tottenhamklúbbnum á Íslandi ber ekki ábyrgð á ferðarofi , seinkunum á flugi  ,frestun leiks , verkföllum flugvallastarfsmanna ,  covid-19 o.s.frv.


ATH: AÐEINS 30 SÆTI Í BOÐI Í ÞESSA FERÐ !

Ef ekki næst næg þátttaka í þessa ferð – getur klúbburinn aflýst ferðinni og endurgreiðir þá öllum staðfestingargjald sem hefur verið greitt.

DEILA
Fyrri fréttMiðakaup 2026 – 2027