Hópferð í desember ( UPPSELT )

0
4806

Daginn

Þá er komið að annarri hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi ,  tímabilið 2017-2018.

Það seldist upp í fyrstu hóperðina sem farin var á leik gegn Swansea í september.
Farið verður á leik Tottenham – Stoke sem fram fer á Wembley leikvanginum í London.
Tilvalið að nýta tækifærið og versla allar jólagjafirnar á spottprís í leiðinni J
Ekki skemmir fyrir að verðið í hópferð Tottenhamklúbbsins hefur sjaldan verið betra en núna og
að fljúga til Heathrow gerir ferðalag milli flugvallar og hótels mjög stutt  ( ca. 35 mín )
** UPPFÆRT – UPPSELT ER Í FERÐINA   **

Ferðatilhögun er eftirfarandi :

Tottenham – Stoke
Wembley Stadium  ,   laugardaginn   9. desember 2017.
( leikur gæti verið færður yfir á sunnudag )

FLUG

KEF – LONDON HEATHROW           Föstudagur 8. desember       kl. 07.55  lent úti kl. 11.10                               Icelandair

LONDON HEATHROW – KEF            Mánudaginn 11. desember   kl. 20.30 heimkoma kl. 23.40                         Icelandair
Innifalið er 23kg taska báðar leiðir ásamt 10kg handfarangri ( hámarksstærð : 55x40x20 cm )

GISTING

Travelodge London Wembley High Road í þrjár nætur    ( án morgunmatar )   –  hótel í göngufæri frá Wembley leikvanginum.

Full English morgunverðarhlaðborð í boði á morgnana á £ 8.25 – þarf ekki að panta fyrirfram.
Sjá hér morgunverðar matseðil : https://www.travelodge.co.uk/sites/default/files/TL16BM_Breakfast_Menu_Online_17.pdf

Veitingastaður / Bar á hótelinu opinn allan sólarhringinn – hér er týpískur matseðill fyrir Travelodge ( getur verið smá breytilegur milli hótela )  – https://www.travelodge.co.uk/sites/default/files/TL2941_Dinner_Menu_Online_June17.pdf

Umsögn gesta á Tripadvisor um hótelið :
https://www.tripadvisor.com/Hotel_Review-g186338-d7248301-Reviews-Travelodge_London_Wembley_High_Road-London_England.html

RÚTA

Rúta til og frá flugvelli í London

MIÐI + MEMBERS

Miði á leikinn á Wembley ásamt skráningu í klúbbinn úti sem er skylda

ÍSLENSK FARARSTJÓRN

Verð :        69.990.-    miðað við 2 í herbergi

Verð miðast við meðlimi Tottenhamklúbbsins á Íslandi sem greitt hafa árgjaldið 2017-2018 en rukkun fyrir það verður send út í október.
Kr. 2.800.- bætist við verð þeirra sem EKKI hafa greitt árgjald Tottenhamklúbbsins á Íslandi fyrir tímabilið 2017-2018 um mánaðarmótin október/nóvember
Verð fyrir einstaklingsherbergi er 82.990.-

1 x þriggja manna herbergi er í boði og kostar á mann 67.990.- að vera í 3ja manna herbergi.

 

  • Við skráningu í ferðina skal senda e-mail á spurs@spurs.is  og þarf eftirfarandi að koma fram fyrir alla sem ætla í ferðina :

o   Nafn

o   Kennitala

o   Heimilisfang

o   GSM númer

o   E-mail

o   Double room / Twin room / Family room ( 1 x double og 1 x single ) –   (    double room er með einu stóru rúmi / twin room með tveimur rúmum. )

  • Greiða þarf staðfestingargjald kr. 30.000.- á mann við bókun á ferð.    Eftirstöðvar greiðast svo ca 30-40 dögum fyrir brottför.
    (staðfestingargjald þetta fæst ekki endurgreitt nema hægt verði að fylla sætið )

Staðfestingargjaldið skal greiða inn á reikning Tottenhamklúbbsins :  0537 – 26 – 3110    ,  kt.  630103-3550
og senda skal greiðslukvittun á
 spurs@spurs.is

  • Þeir sem eru þegar skráðir sem meðlimir Tottenhamklúbbsins í Bretlandi og hafa borgað árgjaldið þar –  borga sem nemur 6.000.- minna   fyrir  ferðina. Gefa þarf þá upp númer meðlimakorts við skráningu.
  • Hægt er að nota vildarpunkta til að greiða part af ferðinni.   Hér að neðan er tafla sem sýnir hvað fæst fyrir ákveðið magn af vildarpunktum.
    10.000 Vildarpunktar að andvirði  kr 5.500.-
    20.000 Vildarpunktar að andvirði  kr 11.000.-
    30.000 Vildarpunktar að andvirði  kr 16.500.-
    40.000 Vildarpunktar að andvirði  kr 22.000.-
    Ef greiða á part af ferð með vildapunktum ,  þarf það að koma fram við bókun ,  og þá hve marga punkta skal nota uppí ferðina.
  • Hægt er að kaupa gjafabréf hjá einhverjum stéttarfélögum frá  Icelandair sem hægt er að nota í ferðina.   Gjafabréf þessi eru seld af stéttarfélögum fyrir lægri pening en upphæð þeirra er  t.d. er hægt að kaupa gjafabréf að verðmæti 30.000 hjá VR ,  en aðeins er greitt 23.000.- fyrir slíkt gjafabréf ,   Þannig að með slíkum gjafabréfum getur fólk lækkað ferðakostnaðinn.  Mæli eindregið með því að fólk hafi samband við sín stéttarfélög og ath. hvort þau séu að selja gjafabréf frá Icelandair
    Stéttarfélag sem vitað er að bjóða uppá gjafabréf hjá Icelandair:

    • VR
    • SFR
    • Efling
    • Kjölur
    • SFK

Ef það á að notast við gjafabréf uppí ferðina ,  þarf það að koma fram við bókun.  Númer gjafabréfs þarf það að koma fram í e-maili við bókun.           

** Tottenhamklúbburinn áskilur sér rétt til að fella niður þessa ferð ef næg þátttaka fæst ekki.    Staðfestingargjald uppá kr. 30.000.- verður þá endurgreitt til þeirra sem hafa greitt það **

Kv

Stjórnin

** ATH. að aðeins verða í boði 30 sæti í þessa ferð **
** Fyrstur kemur fyrstur fær **
** Uppselt hefur verið í síðustu ferðir klúbbsins **