Daginn Þá er komið að næstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi Farið verður á leik Tottenham – Crystal Palace sem verður á Tottenham Hotspur Stadium, laugardaginn 10. maí 2025 , kl. 15.00 Sumar og sól í London á þessum árstíma. ** Það á eftir að velja sjónvarpsleiki fyrir þessa umferð – leiktími gæti breyst ** ATH: AÐEINS 40 SÆTI Í BOÐI Í ÞESSA FERÐ Ferðaupplýsingar : * Flug út með Play – föstudaginn 9. maí kl. 06.40 , lending á Stansted í London kl. 10.40. * Flug heim með Play frá Stansted mánudaginn 12. maí kl. 11.40 og lent í Keflavík kl. 13.45 (innifalið í flugi er innritaður farangur 20 kg + lítil handfarangurstaska að hámarki í stærð 42 x 32 x 25 cm ( 10kg ) – sem kemst undir sætið fyrir framan farþega ) * Gisting á fínu hóteli í Stratford í þrjár nætur , Ibis – Stratford m/morgunverði. Mjög fínt hótel sem klúbburinn hefur verið á áður og vakti mikla lukku þá. Hótelið er í nokkurra min. göngufjarlægð frá einni stærstu verslunarmiðstöð í London , Westfield https://uk.westfield.com/stratfordcity – einnig er stutt að ganga í underground / lestar á Stratford Station. Upplýsingar um hótel : https://all.accor.com/hotel/3099/index.en.shtml?utm_campaign=seo+maps&utm_medium=seo+maps&utm_source=google+Maps * Rúta til og frá flugvelli ( ca. 40-45 mín rútuferð hvora leið ) * Íslensk fararstjórn Verð : 94.990.- á mann ( miðað við 2 í herbergi ) ( Verð í einstaklingsherbergi er 139.990.- ) Þeir aðilar sem ætla í hópferðina , þurfa að sjá sjálfir um skráningu í Tottenham klúbbinn í UK ( One Hotspur Member ) ásamt því að ganga frá greiðslu á miða þegar greiðsla fyrir miða er klár. Verð ( ca. ) fyrir skráningu í klúbbinn í UK og miða á leikinn : Skráning / Miði ( * ekki víst að við fáum sæti þar sem senior/junior miðar í boði ) Fullorðinn : 4.900 / 13.000 = 17.900.- Eldri borgari : 2.500 / 6.500 = 9.000.- Börn : 2.500 / 6.500 = 9.000. Hér er hægt að skrá sig í Tottenhamklúbbinn í UK : https://www.tottenhamhotspur.com/fans/membership/one-hotspur/ Hér eru svo leiðbeiningar varðandi að skrá sig í klúbbinn i UK https://ask.tottenhamhotspur.com/hc/en-us/articles/360001171669 Til að skrá sig í ferðina þarf að senda e-mail á spurs@spurs.is og gefa eftirfarandi upplýsingar um þann aðila eða þá sem vilja skrá sig í ferðina : * Nafn / Nöfn * Kt * Heimilisfang/föng * GSM númer * E-mail fyrir alla aðila * CRN – membershipnúmerið sem viðkomandi fær við skráningu í Tottenhamklúbbinn í UK – ekki er nauðsynlegt að vera með þetta númer við skráningu í ferðina – en það þarf að senda þetta númer fljótlega eftir skráningu ( 7.2.2025 í síðasta lagi ) Greiða þarf staðfestingargjald kr. 40.000.- pr persónu við skráningu í ferðina – með því að millifæra á reikning Tottenhamklúbbsins á Íslandi : 0537 – 26 – 3110 , kt. 630103-3550 og senda skal kvittun á spurs@spurs.is Eftirstöðvar þarf að ganga frá eigi síðar en 15. apríl ** ath að Tottenhamklúbburinn á Íslandi er eingöngu milligönguaðili varðandi þessa ferð , þeir aðilar sem fara í þessa ferð eru á eigin vegum og þurfa að vera með allar sínar tryggingar á hreinu þar sem Tottenhamklúbbnum á Íslandi ber ekki ábyrgð á ferðarofi , seinkunum á flugi ,frestun leiks , verkföllum flugvallastarfsmanna , covid-19 o.s.frv. ** ATH: AÐEINS 40 SÆTI Í BOÐI Í ÞESSA FERÐ ! Ef ekki næst næg þátttaka í þessa ferð – getur klúbburinn aflýst ferðinni og endurgreiðir þá öllum staðfestingargjald sem hefur verið greitt. |