Aðalfundur og Evrópu úrslitakvöld

0
205

Daginn

Aðalfundur Tottenhamklúbbsins á Íslandi verður haldinn á Ölver – Glæsibæ , miðvikudaginn 21. maí 2025 , kl. 18.00

Dagskrá fundar:

1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar síðasta árs
3. Kosning stjórnar
4. Önnur mál

Eftir fund munum við svo horfa á úrslitaleikinn í Evrópudeildinni þar sem Tottenham mætir Man. Utd. á San Mamés leikvanginum í Bilbao á Spáni.
Tottenhamklúbburinn mun bjóða uppá mat og drykki með leiknum.
Gerum þennan úrslitaleik eftirminnilegan í góðum hóp Spursara á Ölver.

Vonandi sjá sem flestir félagsmenn sér fært að mæta og gaman væri að sjá ný andlit á staðnum. Ef einhver hefur áhuga á að bjóða sig fram í stjórn Tottenhamklúbbsins má hinn sami láta vita á e-mailið spurs@spurs.is. Nýir aðilar sem vilja leggja eitthvað á vogarskálarnar við rekstur klúbbsins eru mjög velkomnir á fundinn – margar hendur vinna létt verk.

Stjórnin