Hópferð nr. 2

0
6366

Þá er komið að annari hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi ,  tímabilið 2016-2017.
Uppselt hefur verið í síðustu ferðir klúbbsins og færri komist að en vilja.

Því er um að gera að bóka snemma.

Fyrirhuguð hópferð verður í desember og verður farið á leik í Meistaradeildinni á Wembley gegn Rússneska liðinu CSKA Moskva.
Uppselt er á leikinn og verða því um 85.000 manns á leiknum.

Tilvalið að taka smá jólainnkaup í leiðinni enda er pundið mjög hagstætt um þessar mundir.

Þess má einnig geta að það gæti farið svo að þetta verði síðasta hópferð klúbbsins á þessu tímabili.

Ferðatilhögun er eftirfarandi :

Tottenham – CSKA Moskva
Wembley Stadium  ,   miðvikudaginn 7. desember 2016.

FLUG

KEF – LONDON GATWICK            Þriðjudaginn 6. desember.  kl. 06.15  lent úti kl. 9.25                               WOW Air

LONDON GATWICK – KEF             Fimmtudaginn  8. desemer  kl. 20.10 heimkoma kl. 23.25                    WOW Air
Innifalið er 20kg taska báðar leiðir ásamt 5kg handfarangri.

GISTING

Travelodge London Wembley í tvær nætur    ( án morgunmats )   –  hótel ekki langt frá Wembley leikvanginum.

Full English morgunverðarhlaðborð í boði á morgnana á £ 7.95 – þarf ekki að panta fyrirfram.

Veitingastaður / Bar á hótelinu opinn allan sólarhringinn  – hér er týpískur matseðill fyrir Travelodge ( getur verið smá breytilegur milli hótela )  – http://www.travelodge.co.uk/assets/img/bar_cafe/bar_cafe_menu.pdf

Umsögn gesta á Tripadvisor um hótelið :
https://www.tripadvisor.com/Hotel_Review-g186338-d597383-Reviews-Travelodge_Wembley-London_England.html

RÚTA

Rúta til og frá flugvelli í London

MIÐI + MEMBERS

Miði á leikinn á Wembley ásamt skráningu í klúbbinn úti  ( sú skráning gildir fyrir tímabilin 2016-2017 og 2017-2018 )

ÍSLENSK FARARSTJÓRN


Verð :        69.990.-    miðað við 2 í herbergi

Verð miðast við meðlimi Tottenhamklúbbsins á Íslandi sem greitt hafa árgjaldið 2016-2017.
Greiðsluseðlar fyrir árgjaldinu 2016-2017 hafa verið sendir út.

Kr. 2.800.- bætist við verð þeirra sem EKKI hafa greitt árgjald Tottenhamklúbbsins á Íslandi fyrir tímabilið 2016-2017.
Verð fyrir einstaklingsherbergi er 79.990.-
Við skráningu í ferðina ,  þarf eftirfarandi að koma fram fyrir alla sem ætla í ferðina :

  • Nafn
  • Kennitala
  • Heimilisfang
  • GSM númer
  • E-mail
  • Double room / Twin room  (    double room er með einu stóru rúmi / twin room með tveimur rúmum. )

Greiða þarf staðfestingargjald kr. 30.000.- á mann við bókun á ferð.    Eftirstöðvar greiðast svo í byrjun nóvember.
( staðfestingargjald þetta fæst ekki endurgreitt nema hægt verði að fylla sætið )

Staðfestingargjaldið skal greiða inn á reikning Tottenhamklúbbsins :  0537 – 26 – 3110    ,  kt.  630103-3550
og senda skal greiðslukvittun á
 spurs@spurs.is

  • Þeir sem eru þegar skráðir sem meðlimir Tottenhamklúbbsins í Bretlandi og hafa borgað árgjaldið þar –  borga sem nemur 7.000.- minna   fyrir  ferðina. Gefa þarf þá upp númer meðlimakorts við skráningu.
  • Hægt er að kaupa gjafabréf hjá einhverjum stéttarfélögum frá WOW air sem hægt er að nota í ferðina.   Gjafabréf þessi eru seld af stéttarfélögum fyrir lægri pening en upphæð þeirra er  t.d. er hægt að kaupa gjafabréf að verðmæti 30.000 hjá VR ,  en aðeins er greitt 22.500.- fyrir slíkt gjafabréf ,   Þannig að með slíkum gjafabréfum getur fólk lækkað ferðakostnaðinn.  Mæli eindregið með því að fólk hafi samband við sín stéttarfélög og ath. hvort þau séu að selja gjafabréf frá WOW.
    Stéttarfélag sem vitað er að bjóða uppá gjafabréf hjá WOW:

    • VR

** Tottenhamklúbburinn áskilur sér rétt til að fella niður þessa ferð ef næg þátttaka fæst ekki.    Staðfestingargjald uppá kr. 30.000.- verður þá endurgreitt til þeirra sem hafa greitt það **

Kv

Stjórnin