Hópferð í september

0
2358

Tottenhamklúbburinn á Íslandi hefur sett í sölu sæti í fyrstu hópferð tímabilsins.

Leikur á móti Swansea um miðjan september þegar sólin skín enn í London og sumarið þar alls ekki á enda :

Upplýsingar um ferðina :

Þá er komið að fyrstu hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi ,  tímabilið 2017-2018.

Fyrirhuguð hópferð verður í september – ennþá vel heitt og gott veður í London á þessum tíma.
Farið á leik Tottenham – Swansea sem fram fer á Wembley leikvanginum í London.

 

Ferðatilhögun er eftirfarandi :

 

Tottenham – Swansea
Wembley Stadium  ,   laugardaginn   16. september 2017.

FLUG

KEF – LONDON GATWICK            Föstudagur 15. september      kl. 06.10  lent úti kl. 10.25                               WOW Air

LONDON GATWICK – KEF             Mánudaginn 18. september    kl. 21.00 heimkoma kl. 23.20                          WOW Air
Innifalið er 20kg taska báðar leiðir ásamt 10kg handfarangri ( hámarksstærð handfarangurs er 42 cm x 35 cm x 25 cm ) 

GISTING

Travelodge London Wembley í þrjár nætur    ( án morgunmatar )   –  hótel í göngufæri frá Wembley leikvanginum.

Full English morgunverðarhlaðborð í boði á morgnana á £ 7.95 – þarf ekki að panta fyrirfram.

Veitingastaður / Bar á hótelinu opinn allan sólarhringinn  – hér er týpískur matseðill fyrir Travelodge ( getur verið smá breytilegur milli hótela )  – http://www.travelodge.co.uk/assets/img/bar_cafe/bar_cafe_menu.pdf

Umsögn gesta á Tripadvisor um hótelið :
https://www.tripadvisor.com/Hotel_Review-g186338-d7248301-Reviews-Travelodge_London_Wembley_High_Road-London_England.html

 

 

RÚTA

Rúta til og frá flugvelli í London

 

MIÐI + MEMBERS

Miði á leikinn á Wembley ásamt skráningu í klúbbinn úti sem er skylda

 

ÍSLENSK FARARSTJÓRN

 

 

Verð :        74.990.-    miðað við 2 í herbergi

Verð miðast við meðlimi Tottenhamklúbbsins á Íslandi sem greitt hafa árgjaldið 2017-2018 en rukkun fyrir það verður send út í ágúst.
Kr. 2.800.- bætist við verð þeirra sem EKKI hafa greitt árgjald Tottenhamklúbbsins á Íslandi fyrir tímabilið 2017-2018 um mánaðarmótin ágúst/september.
Verð fyrir einstaklingsherbergi er 88.990.-

2-3 þriggja manna herbergi eru í boði og kostar á mann 72.990.- að vera í 3ja manna herbergi.

 

  • Við skráningu í ferðina ,  þarf eftirfarandi að koma fram fyrir alla sem ætla í ferðina :

o   Nafn

o   Kennitala

o   Heimilisfang

o   GSM númer

o   E-mail

o   Double room / Twin room / Triple room  (    double room er með einu stóru rúmi / twin room með tveimur rúmum. )

  • Greiða þarf staðfestingargjald kr. 30.000.- á mann við bókun á ferð.    Eftirstöðvar greiðast svo ca. mánuð fyrir brottför.
    ( staðfestingargjald þetta fæst ekki endurgreitt nema hægt verði að fylla sætið )

Staðfestingargjaldið skal greiða inn á reikning Tottenhamklúbbsins :  0537 – 26 – 3110    ,  kt.  630103-3550
og senda skal greiðslukvittun á
 spurs@spurs.is

  • Þeir sem eru þegar skráðir sem meðlimir Tottenhamklúbbsins í Bretlandi og hafa borgað árgjaldið þar –  borga sem nemur 6.000.- minna   fyrir  ferðina. Gefa þarf þá upp númer meðlimakorts við skráningu.
  • Hægt er að kaupa gjafabréf hjá einhverjum stéttarfélögum frá WOW air sem hægt er að nota í ferðina.   Gjafabréf þessi eru seld af stéttarfélögum fyrir lægri pening en upphæð þeirra er  t.d. er hægt að kaupa gjafabréf að verðmæti 30.000 hjá VR ,  en aðeins er greitt 22.500.- fyrir slíkt gjafabréf ,   Þannig að með slíkum gjafabréfum getur fólk lækkað ferðakostnaðinn.  Mæli eindregið með því að fólk hafi samband við sín stéttarfélög og ath. hvort þau séu að selja gjafabréf frá WOW.
    Stéttarfélag sem vitað er að bjóða uppá gjafabréf hjá WOW:

    • VR

 

 

** Tottenhamklúbburinn áskilur sér rétt til að fella niður þessa ferð ef næg þátttaka fæst ekki.    Staðfestingargjald uppá kr. 30.000.- verður þá endurgreitt til þeirra sem hafa greitt það **

 

Kv

Stjórnin

 

** ATH að aðeins verða í boði 30 sæti í þessa ferð **

                    Fyrstur kemur fyrstur fær