Tottenham lék í deildinni við lið Everton á Goodison Park á sunnudaginn var. Liðið var 0-1 yfir þegar komið var fram á 90. Mínútu en tókst engu að síður að tapa leiknum 2-1 þar sem Everton skoraði tvö mörk í uppbótartíma.
Tottenham spilaði alveg ágætlega í leiknum þó að Everton hafi verið hættulegri fram á við. Staðan í hálfleik var 0-0. Það var svo á 76. Mínútu sem Tottenham komst yfir í leiknum þegar Dempsey átti skot fyrir utan teig sem fór í varnarmann og fór yfir Howard í marki Everton. Staðan 0-1 , aðeins gegn gangi leiksins. 5 mínútum fyrir leikslok munaði svo litlu að Gylfi myndi koma Tottenham í 0-2 þegar skot hans fyrir utan teig fór yfir Howard í markinu en boltinn small í þverslánni. Það var svo á 90. Mín þegar Everton jafnaði leikinn , smá misskilningur milli Lloris og Caulker var í aðdraganda marksins, þegar Lloris var að fara að grípa boltann en Caulker ákvað að hreinsa frá , ekki nógu langt og beint á Everton mann sem hélt sókninni áfram, boltinn kom fyrir og Pienaar fyrrum leikmaður Tottenham stangaði boltann í netið. Gríðarlega svekkjandi að fá þetta mark á sig en vont átti eftir að versna þar sem Everton tókst að skora aftur ca. 3 mín síðar þegar löng sending inn í teiginn var skölluð áfram inn í teig og boltinn fór beint á Jelavic sem potaði í boltann og í hornið fór boltinn .. .lygilegar lokamínútur og 2-1 tap staðreynd.
Lið Tottenham í leiknum :
Lloris – Walker – Caulker – Gallas – Vertonghen – Lennon ( Huddlestone 71 ) – Sandro – Dembele ( Gylfi 77 ) – Dempsey – Defoe ( Falque 85 ) – Adebayor
Ónotaðir varamenn :
Friedel – Naughton – Livermore – Townsend









