Tottenham lék við West Ham á útivelli fyrir rúmlega viku síðan og hafði sigur 2-3 í hörkuleik. Bale skoraði tvö mörk fyrir Tottenham og Gylfi Sigurðsson komst á blað í Ensku úrvalsdeildinni með Tottenham þegar hann setti 1.
Tottenham byrjaði leikinn vel og komust yfir 0-1 þegar Bale skoraði með góðu skoti fyrir utan teig, neðst í hornið. Undir lok fyrri hálfleiks fékk svo West Ham víti þegar Parker tók niður Carroll. Carroll fór á punktinn og skoraði örugglega , 1-1 og þannig stóð í hálfleik.
West komst svo yfir í síðari hálfleik þegar Joe Cole fékk góða sendingu innfyrir vörn Tottenham og kláraði nokkuð vel. Nokkrum mínútum síðar jafnaði svo Gylfi metin eftir darraðadans í teignum. Það var svo á 89. mínútu sem Bale tryggði stigin 3 með stórkostlegu marki langt fyrir utan teig sem fór ofarlega í hornið – óverjandi fyrir Jussi í marki West Ham sem átti annars stórleik og kom í veg fyrir stærri sigur Tottenham.









