Jafntefli í Evrópudeildinni

0
666

Tottenham lék fyrri leik sinn við Basel frá Sviss í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn í síðustu viku.  Leikið var á heimavelli Tottenham ,  White Hart Lane.   Leikurinn endaði 2-2 eftir að Svisslendingarnir komust í 0-2.  Adebayor og Gylfi Sigurðsson skoruðu mörk Tottenham í leiknum.  Mark Gylfa var einkar glæsilegt,  skot vel fyrir utan teig sem söng í netinu.  Undir lok leiksins meiddist Bale illa og verður frá í einhvern tíma ,  en nær vonandi leiknum gegn Man. City síðar í mánuðinum.