Dómaraskandall í niðurlægingu á WHL

0
772

Jæja ég er byrjaður aftur að skrifa hérna, eftir mikla tæknilega örðugleika í rúma 2 mánuði. Það hefur gengið ansi mikið á þeim tíma og minn maður AVB meðal annars verið rekinn, en Sherwood hefur nú staðið sig vel, þannig þýðir ekkert að grenja yfir því. Það var svo vel við hæfi miðað við þetta undarlega tímabil, að byrja að skrifa aftur eftir þennan leik.

Okkar menn voru vægast sagt teknir í kennslustund þegar þeir mættu Manchester City fyrr í kvöld á White hart lane. Fyrri leikur liðana á Ettihad Stadium hafði endað 6-0 og bjuggust líklega flestir við því að Spurs myndi að minnsta kosti spila fyrir stoltið í kvöld. Svo reyndist ekki vera, ef þið hafið ekki áhuga á að lesa almennt tuð og væl, mæli ég með því að þið sleppið að lesa það sem eftir kemur.

 

Byrjunarlið Tottenham : Lloris, Walker, Chiriches, Dawson, Rose, Lennon, Bentaleb, Dembele, Gylfi Sigurðsson, Eriksen, Adebayor 

Byrjunarlið Manchester City : Hart, Zabaleta, Kompany, Demichelis, Clichy, Navas, Fernandinho, Yaya Toure, Silva, Aguero, Dzeko

Ég segi alveg satt, þegar ég greini frá því að ég varð afar stressaður fyrir því að sjá hinn 19 ára Bentaleb í byrjunarliðinu. City er líklega með bestu miðjuna í deildinni í þeim Fernandinho og Touré og því hreinlega skandall að gera piltinum það að spila á móti þeim. Það að Aguero myndi spila á móti Dawson hjálpaði heldur ekki. Það sem hneykslaði mig samt mest var það að enginn af þeim leikmönnum sem var búist við úr meiðslum, voru í hóp. Verthongen, Sandro, Paulinho og Townsend, allir þessir leikmenn hafa verið að æfa síðustu 2 vikur og meira segja spilað æfingaleik gegn West Ham sem sigraðist 3-0. Ef þeir spila næsta leik á móti Hull sem er á 1. febrúar verð ég vægast sagt vonsvikin með Tim Sherwood, þar sem það þýðir þá að þeir hafa alveg verið tilbúnir í þennan leik og við þar með kannski sloppið við þessa niðurlægingu. Bara Verthongen hefði munað öllu þar sem að Dawson er bara ekki hæfur sínu starfi að mínu mati gegn leikmönnum eins og Aguero og Suarez, eins og við höfum væntanlega flestir séð í vetur.

Leikurinn byrjaði með algjörum yfirburðum City og komust þeir snemma í 1-0 með marki Aguero. Tottenham sá varla boltan fyrstu 25 mínúturnar en tókst svo að stríða City aðeins restina af hálfleiknum og náðu meira að segja að koma boltanum í netið, en markið því miður dæmt rangstæða. Seinni hálfleikurinn byrjaði skefilega þar sem línuvörðurinn ákvað að eyðileggja leikinn og dæma vítaspyrnu, aðaldómarinn hafði ætlað að sleppa því að dæma brot en línuvörðurinn sannfærði hann um að dæma brot og þar með víti og rautt á Rose fyrir flotta tæklingu. Þetta er sami línuvörður og dæmdi Tiote markið af gegn City þar seinustu helgi, frekar gruggugt verð ég að segja. Eftir þetta völtuðu City bara yfir Spurs og unnu að lokum 5-1 sigur, þar sem Capoue skoraði eina mark Spurs, en hann leit ágætlega út.

Það verður hins vegar að setja spurningarmerki við Sherwood í þessum leik, bæði varðandi uppstillingu og skiptingar. Þegar þú lendir manni færri gegn City eins og þeir eru að spila, þá áttu bara að pakka í vörn og reyna að tefja til að verða ekki fyrir niðurlægingu. En jæja svona fór og 4 niðurlæging Spurs á þessu tímabili, annað 5-1 tapið á White hart lane en seinasti stjóri sem tapaði 5-1 á heimavelli eftir að hafa verið ósigraður í 5 leiki í röð var rekinn. Spurning hvað gerist núna,  vonandi verður dómaratríóið þeir einu sem verða reknir eftir þennan leik. Það er þó ekki þeim að kenna að Tottenham hefur nú tapað saman lagt 11-1 gegn City, en það er einfaldlega ekki boðlegt fyrir neitt lið gegn neinu liði. Þetta er hreinlega vandræðalegt fyrir klúbb eins og Spurs og réttast væri að leikmennirnir borguðu stuðningsmönnunum miðana sína tilbaka þegar liðið tapar svona stórt

En það er óskandi að það séu bjartari tímar framundan og vonandi koma Verthongen, Sandro og félagar fljótlega úr meiðslum.