Töpuð stig á KC Stadium

0
665

Hull City (4-4-2): Harper – Rosenior, Davies, McShane, Figueroa – Elmohamady, Huddlestone, Meyler, Brady – Jelavic, Long 
Varamenn: Jakupovic, Bruce, Koren, Boyd, Quinn, Fryatt, Sagbo 

Tottenham (4-4-2): Lloris – Walker, Dawson, Vertonghen, Rose – Lennon, Bentaleb, Paulinho, Eriksen – Adebayor, Soldado 
Varamenn: Friedel, Kaboul, Naughton, Capoue, Chadli, Sigurðsson, Kane

Þetta voru liðin sem mættust á KC Stadium í dag, Dembéle datt út úr hóp eftir að fengið högg gegn City og líklegast verið að refsa Chiriches fyrir kojufyllerí sem hann fór á seinustu helgi í Rúmeníu. Verthongen og Paulinho snéru til baka eftir löng meiðsli, mjög jákvætt að fá þá tilbaka, en spurning hvort það hefði ekki verið hægt að nota þá gegn City fyrr í vikunni og þannig mögulega komið í veg fyrir niðurlæginguna sem þar átti sér stað.

Uppstillingin í dag var frekar sókndjörf hja báðum liðum, með einhvers konar 4-4-2 kerfum. Hinn ungi Bentalab hélt áfram sæti sínu á miðjunni og Sherwood augljóslega frekar að einbeita sér að því að halda boltanum frekar en að hafa menn sem geta náð honum, þar sem að virðist ekki vera hrifinn af því að stilla upp varnarsinnuðum miðjumönnum.

Hull byrjaði leikinn töluvert betur í dag og voru Spurs eins og þeir væru ennþá í fýlu eftir rassskellinguna frá City. Shane Long kom Hull yfir, eftir frekar slappa varnar tilburði frá okkar mönnum og er ég a.m.k farinn að setja stórt spurningarmerki við fyrirliða okkar Michael Dawson, en lítið sem ekkert skipulag virðist vera á vörninni. Staðan var því 1-0 í hálfleik.

Seinni hálfleikur byrjaði frekar rólega og Hull með yfirhöndina ef eitthvað var, Spurs virtist þó taka yfir leikinn þegar seinni hálfleikur var hálfnaður sem endaði á því að Paulinho jafnaði metinn, en hann hafði verið ósýnilegur fyrir það. Spurs tók smá sprett eftir markið, en koðnuðu svo fljótlega aftur niður. Leikurinn endaði 1-1 og gífurlega döpur frammistaða frá okkar mönnum staðreynd.

Það virðist vanta leiðtoga á völlinn og spurning hvort það sé ekki lausn í því að taka Dawson út úr byrjunarliðinu a.m.k og leyfa einhverjum öðrum leikmönnum að uppgötva leiðtogahæfileik sína eins og t.d. Verthongen sem var fyrirliði hja Ajax áður fyrr. Svo er þessi þrjóska í Tim Sherwood að spila bara sóknarleik að koma smá niður á okkur í sumum leikjum, stundum þarf múrbrjót eins og Capoue til að geta unnið boltan reglulega. Að mínu mati er hann alveg jafn fastur fyrir og þrjóskur eins og AVB var í sínu varnarsinnaða miðjumoðs hápressukerfi. Tim er búinn að falla á prófinu í seinustu tveim leikjum, með þrjósku varðandi kerfið og lélegum skiptingum, mér fannst ótrúlegt hvernig Soladado fékk að hanga inná í allan dag, það hefði mögulega verið lausn að taka hann út af og yfirmanna þá miðjunni. Tottenham virðist vera að missa af 4.sætinu eins og staðan er í dag, en það er þó nóg eftir og vonandi nær Sherwood að þróa leik liðsins til hins betra og finna fleiri lausnir en liðið hefur verið að gera, en þeir virkuðu mjög hugmyndasnauðir í dag.

Góðar stundir og áfram Spurs, Garðar