Tottenham lék á sunnudaginn við Liverpool á heimavelli og beið þar ósigur 0-3. Liðið var engann veginn að spila góðan leik og sigur L´pool verðskuldaður.
Staðan í hálfleik var 0-1 eftir að Sterling skoraði snemma leiks. Fljótlega í síðari hálfleik fékk L´pool frekar ódýra vítaspyrnu sem Gerrard skoraði úr og staðan orðin 0-2 og útlitið svart. Moreno , varnarmaður L´pool kláraði svo leikinn með mjög góðu marki eftir skelfileg mistök Townsend sem var þá nýkominn inná sem varamaður.









