1-1 jafntefli við Besiktas

0
797

Enn eitt jafnteflið var niðurstaðan á White Hart Lane í kvöld, er Tottenham tók á móti Besiktas. Spurs komst yfir í fyrri hálfleik eftir frábært mark hjá Harry Kane sem átti hnittmiðað skot með vinstri í fjær hornið fyrir utan teiginn. Þannig var staðan þegar liðin gengu til búningsherbegja, en mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og Besiktas kannski betri ef eitthvað var.

Í seinni hálfleik byrjuðu Besiktas menn af miklum krafti, en þeir uppskáru ekki mark fyrr en í lok leiks, eftir heldur klaufaleg mistök hjá Chiriches, sem var alls ekki sterkur í kvöld. Hann fékk þá boltan óvart í hendina innan vítateigs og dómarinn gat ekki annað en flautað víti, sem Demba Ba skoraði örugglega úr. 

Allt í allt voru Besiktas líklega sterkari í leiknum, en Tottenham sýndi þó ágæta spretti inn á  milli. Það verður hins vegar að minnast á stórkostlega frammistöðu Hugo Lloris, sem er einfaldlega okkar lang besti leikmaður í dag og hefur verið síðustu tvö ár. Ef ekki hefði verið fyrir Hugo í kvöld, hefði þetta líklega endað mun verr.

Erfitt er þó að vera mjög grimmur við liðið og Pochettino, þar sem 10 breytingar voru gerðar frá Arsenal leiknum. Þetta hefur verið venjan í Evrópu og bikar leikjum, og því virkar þetta oft frekar eins og 11 einstaklingsframtök heldur en liðsheild í þessum keppnum.

Tottenham er því með 2 stig í Evrópudeildinni eftir 2 leiki.

Tottenham-maður leiksins: Hugo Lloris