2 töpuð stig gegn Wigan

0
695

Tottenham lék í gær við Wigan á útivelli og þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að halda baráttunni um meistaradeildarsæti á komandi leiktíð lifandi.  Tottenham byrjaði vel og komst í 0-1 með marki Bale.  Wigan svaraði um hæl og staðan í hálfleik 1-1.  Wigan komst svo yfir í upphafi síðari hálfleiks,  en þegar skammt var eftir skoraði Tottenham og jafnaði leikinn þegar varnarmaður Wigan skoraði sjálfsmark.  Tottenham var svo nálægt því að hirða stigin þrjú alveg í lokin,  en markvörður Wigan bjargaði því.  Dýrkeypt jafntefli niðurstaðan,  sem gerir stöðu Tottenham mjög erfiða í baráttunni um 3ja – 4ja sætið í deildinni.