Greiðsluseðlar verða sendir út á næstu dögum til félagsmanna í Tottenhamklúbbnum á Íslandi. Allir sem greiða klúbbgjaldið fyrir 15. október eiga kost á að vinna nýju Tottenhamtreyjuna í boði Jóa Útherja , Ármúla 36. Dregið verður eftir 15. október úr nöfnum þeirra sem hafa greitt árgjaldið og fær vinningshafinn nýju Tottenhamtreyjuna í verðlaun, í boði Jóa Útherja.
Þeir sem nýskrá sig og greiða klúbbgjaldið fyrir 15. október verða einnig með í pottinum.
Hægt er að skrá sig í klúbbinn hér.
Þeir sem hafa áhuga á að vera á póstlista Tottenhamklúbbsins, og eru það ekki nú þegar – geta sent e-mail á spurs@spurs.is með ósk um að vera settur á póstlistann.









