Dembele kominn

0
749

Mousa Dembele hefur skrifað undir 5 ára samning við Tottenham eftir að Fulham samþykkti tilboð uppá tæpar 15 milljónir punda.

Dembele sem hefur spilað á Craven Cottage með Fulham síðan í ágúst 2010 eftir að hafa komið þangað frá AZ Alkmaar í Hollandi.  Dembele sem er 25 ára skoraði sjö sinnum í 74 leikjum fyrir Fulham og er hugsaður sem eftirmaður Luka Modric sem skrifaði nýlega undir samning við Real Madrid.  Dembele var upphaflega hugsaður sem sóknarmaður en eftir að hafa færst aftar á völlinn og spilað sem sóknarsinnaður miðjumaður blómstraði leikur hans hjá Fulham.  Hjá Tottenham hittir Dembele samherja sinn úr Belgíska landsliðinu Jan Vertongen sem kom til Tottenham fyrr í sumar frá Ajax.

Dembele sagði í viðtali við heimasíðu Tottenham að hann væri ánægður að hafa samið við Tottenham „Þú getur séð að á undanförnum árum hefur Tottenham verið að spila vel og allir vita að liðið er gott og klúbburinn stór og þess vegna vildi ég koma hingað.  Klúbburinn vill gera stóra hluti og ég vil vera partur af því.  Ég hef þekkt Jan (Vertongen) frá því að ég var 10 ára þegar við spiluðum saman hann sagði mér frá mörgum góðum hlutum um klúbbinn og að fólkið hérna væri mjög vinsamlegt það er mér mjög mikilvægt, að finnast gott að vera hérna, sem ég á örugglega eftir að gera“ sagði Dembele að lokum