Nóg virðist að vera að gera hjá Levy og félögum í kvöld því nú er búið að staðfesta kaup á Clint Dempsey frá Fulham. Dempsey skrifaði undir 3 ára samning eftir að Fulham hafði samþykkt tilboð uppá 6 milljónir punda frá Tottenham. Dempsey sem er 29 ára spilaði yfir 200 leiki fyrir Fulham og skoraði í þeim 60 mörk á þeim fimm og hálfu ári sem hann spilaði á Craven Cottage. Auka samningsatriði gæti leynst í samningnum sem felur í sér að Tom Huddlestone og Harry Kane gætu farið að láni til Fulham.
Nýjustu fréttirnar
Miðakaup 2025-2026
Daginn
Hér að neðan er listi yfir leikdaga og dagsetningar hvenær þarf að panta á leiki í síðasta lagi.









