Rétt í þessu var Hugo Lloris tilkynntur sem leikmaður Tottenham. Hugo Lloris sem er 25 ára gamall kemur frá Lyon og er aðalmarkmaður og fyrirliði Franska landsliðsins. Kaupverðið er talið vera í kringum 8 milljónir punda en gæti hækkað upp í 12 milljónir punda ásamt því að Lyon fær 20% af kaupverðinu verði hann seldur frá Tottenham. Lloris gerði 4 ára samning við Tottenham.
Nýjustu fréttirnar
Aðalfundur Tottenhamklúbbsins 2026
Daginn
Aðalfundur Tottenhamklúbbsins á Íslandi verður haldinn á Ölver , sunnudaginn 24. maí 2026 , kl. 13.30









