Tottenham tapaði rétt í þessu sínum fyrsta leik á tímabilinu gegn nágrönnum sínum í Arsenal 0-1 á Emirates leikvanginum með marki frá Giroud á 24 mínútu.
AVB gerði eingar breytingar á byrjunarliði sínu í leiknum í kvöld frá síðasta deildarleik en liðið var skipað Lloris, Walker, Dawson, Vertonghen, Rose, Chadli, Townsend (Lamela 75), Capoue (Sandro 75), Paulinho, Dembele (Defoe 69) og Soldado.
Leikurinn stóð eiginlega aldrei undir þeim væntingum sem til hans stóðu. Arsenal átti hættulegri sóknartækfæri en varla hægt að tala um opin færi hjá meðan okkar menn héldu boltanum meira innan liðsins án þess að skapa sér mikið og greinilegt að liðinu sárvantar einhvern sem kallast ætti leikstjórnandi því hvorki Paulinho né Dembele fundu síg í þessum leik. Soldado var mikið einangraður og fékk nánast úr engu að moða. Eini leikmaðurinn sóknarlega sem eitthvað bar á í leiknum var Townsend en lítil hætta skapaðist fyrir framan mark Arsenal. Hinsvegar átti Hugo Lloris stórleik í marki Spurs og átti meiri að segja eina frábæra tæklingu á Walcott sem hvaða varnarmaður hefði verið stoltur af.
Næsti leikur Tottenham verður gegn Norwich laugardaginn 14. september og kemur þetta landsleikjahlé núna á heppilegum tíma fyrir Tottenham en vonandi ná nýju leikmennirnir að spila sig eitthvað saman fyrir þann leik.









