Mikið um að vera!!!

0
770

Það hefur heldur betur verið nóg um að vera hjá Tottenham á leikmanna markaðinum í sumar og í dag bættust 3 nýjir leikmenn í hópinn.

Fyrstan ber að nefna Vlad Chiriches 23 ára rúmenskan varnarmann sem kemur frá Steaua Bucharest, talið er að Tottenham hafi greitt á bilinu 7-9 mílljónir punda fyrir hann.

Næstur var Christian Eriksen 21 ára danskan sóknarsinnaðan miðjumann sem kemur frá Ajax í Hollandi þar sem hann spilaði 161 leik og skoraði 33 mörk og hefur orðið Hollandsmeistari með þeim undanfarin 3 ár 2011-2013.  Talið er að kaupverðið á honum hafi verið á bilinu 12-14 milljónir punda.

Siðast en ekki síst skrifaði hinn bráðefnilegi Erik Lamela undir samning við Tottenham í dag en Lamela varð þar með dýrasti leikmaður Tottenham frá upphafi og kaupverðið er talið nema allt að 30 milljónum punda.  Lamela er argentískur kantmaður sem hefur spilað með Róma á Ítalíu og með þessum kaupum er orðið ljóst að besti leikmaður Tottenham frá síðasta tímabili Gareth Bale er á leiðinni til Real Madrid og verður þar með líklega dýrasti leikmaður heims en hann samdi fyrr í dag um kaup og kjör við spánverjana og eiga þá bara Tottenham og Real Madrid eftir að semja um verðið á leikmanninum.