Jafntefli í Lundúnaslagnum

0
809

Tottenham og Chelsea áttust við fyrr í dag á White hart lane, þar sem var heldur betur tekið á því. Andre Villas Boas var að mæta sínum fyrverandi læriföður, José Mourinho í fyrsta skipti síðan leiðir þeirra skildu. Það vita síðan allir að það eru engin sérstök ást á milli Chelsea og Tottenham, þannig að það var vitað að ekkert yrði gefið eftir og sú var raunin. 

Tottenham byrjaði leikinn heldur betur og áttu hreinlega fyrri hálfleikinn, það var Gylfi Sigurðsson sem skoraði fyrsta mark leiksins eftir frábæran undirbúning hjá Eriksen og Soldado, 1-0 eftir 18. mínútur og Gylfi orðinn markahæsti leikmaður Spurs í deildinni með 3 mörk. Tottenham hefð getað skorað fleiri í fyrri hálfleik, en voru einfaldlega óheppnir. Staðan 1-0 í hálfleik og spilamennska okkar mann algjörlega til fyrirmyndar.

Í seinni hálfleik kom leikmaður að nafni Juan Mata inn á fyrir Chelsea, sem hefur verið í frysti hjá Mourinho, þrátt fyrir að vera með betri leikmönnum deildarinnar. Hann breytti leik þeirra til hins betra og Tottenham lá til baka. Það endaði með því að John Terry skoraði eftir aukaspyrnu frá Mata, á 65. mínútu. Það kom aðeins meira jafnvægi á leikinn eftir þetta, en Chelsea með yfirhöndina ef eitthvað var. Það kom síðan rautt spjald í leikinn á 81. mínútu þegar FernandoTorres fékk sitt seinna gula spjald, eftir að hafa vaðið í Jan Verthongen. Dómarinn hefði þó getað verið búinn að vísa Torres miklu fyrr út af, þegar hann klóraði og ýtt í andlitið á Verthongen. Eftir brottvísunina, pressaði Spurs meira og munaði litlu að bæði Jermain Defoe og Gylfi hefðu skorað. Leiknum lauk þó með jafntefli, sem voru bara nokkuð sanngjörn úrslit.

Byrjunarliðið: Lloris; Walker, Naughton, Dawson, Vertonghen; Paulinho, Dembele, Townsend(Chadli), Eriksen(Holtby), Sigurdsson; Soldado(Defoe)

Bekkurinn:Friedel, Chirches, Lamela, Sandro,

Maður leiksin: Mousa Dembéle. Hann var hreinlega ótrúlegur, vann svaka vel á miðjunni í baráttu leik og gafst aldrei upp. Var stundum of lengi með boltan, en hann bætti það upp með öðru.

Næsti leikur: Anzi á útivelli á fimmtudaginn klukkan 16:00 í Evrópudeildinni