Tottenham vann í dag 1-0 sigur á Cardiff í Wales en markið skoraði Paulinho, sitt fyrsta deildarmark fyrir Tottenham, á 93. mínútu leiksins eftir sendingu frá Erik Lamela.
Andre Villas-Boas gerði eina breytingu á byrjunarliðinu frá síðasta deildarleik en Kyle Naughton kom inní vinstri bakvörðinn á kostnað Danny Rose sem meiddist í Evrópuleiknum á fimmtudagskvöldið, þá komu þeir Vlad Chiriches og Harry Kane á bekkinn í stað Younes Kaboul og Jermain Defoe sem eru báðir meiddir.
Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti meðan leikmenn Tottenham virtust vera að koma sér fyrir á vellinum. Á sjöundu mínútu leiksins kom svo eitt af bestu færum heimamanna í leiknum þegar Kyle Naughton, sem átti ekki sinn besta leik í dag, sendi boltann beint fyrir lappirnar á Frazier Campbell sem var einn á móti Hugo Lloris sem gerði vel í að verjast áhlaupi hans, umdeilt atvik því svo virðist sem Lloris handleiki boltann utan teigs og hefði dómari leiksins góðkunningi Spurs Mark Clattenburg flautað hefði hann líklega þurft að vísa Lloris af velli. Eftir þetta hinsvegar varð fyrri hálfleikur eign gestanna sem virtust gera allt rétt nema þegar liðið kom með boltann upp að teig heimamann þá voru alltof oft teknar vitlausar ákvarðanir og ef réttar ákvarðanir voru teknar beið Marshall markmaður Cardiff í rammanum í banastuði og varði frábærlega td frá Eriksen og Soldado. Seinni hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri, heimamenn sterkari, en á 50. mínútu komst Tottenham nálægt því að skora þegar skot Gylfa Þórs endaði í þverslánni þar sem Marshall hreyfði sig ekki á línunni en varði svo frábærlega frá Soldado sem náði frákastinu, mark lá í loftinu en Marshall varði vel og hélt heimamönnum á floti í leiknum. Það var svo undirlokin að Cardiff komst meira inní leikinn og hefðu getað skorað með örlítillri heppni. Það var svo á 93. mínútu að sigurmarkið kom eftir góðan undirbúning tveggja varamanna, Erik Lamela vann skallabolta sem barst til Lewis Holtby sem lagði hann aftur á Lamela sem lék í átt að endalínunni og átti góða sendingu út í markmannsteiginn þar sem Paulinho líklega besti leikmaður Tottenham í leiknum kom askvaðandi og lagði boltann snyrtilega í markið með hælnum. Staðan orðin 1-0 fyrir gestina og þannig lauk leiknum. Eins og fyrr segir var Paulinho mjög sterkur í leiknum og var sá leikmaður á miðjunni sem kom hvað oftast við boltann eða 72 sinnum, þá var Michael Dawson góður í vörninni og fleygði sér í og fyrir alla bolta sem hann gat.
Cardiff: Marshall; Theopile-Catherine, Caulker, Turner, Taylor; Bellamy (Cowie, 78), Gunnarsson, Medel, Whittingham; Kim; Campbell (Odemwingie, 65). Varamenn: Lewis, Hudson, Mutch, Mason, Maynard.
Spurs: Lloris; Walker, Dawson, Vertonghen, Naughton; Dembele, Paulinho; Townsend (Kane, 81), Eriksen (Holtby, 89), Sigurdsson (Lamela, 71); Soldado. Varamenn: Friedel, Chiriches, Fryers, Sandro.
Tölfræði
Cardiff City FC Tottenham Hotspur FC
0 Skot á markið 12
4 Skot framhjá 9
2 Skot blokkeruð 8
2 Hornspyrnur 12
64,3% Heppnaðar sendingar% 81,1%
36,2% Með boltann% 63,8%
286 Fjöldi sendinga 512
11 Fjöldi krossa 22
146 Tapaðir boltar 171
Næstu leikir Tottenham eru gegn Aston Villa í deildarbikarnum á þriðjudaginn og svo fáum við Chelsea í heimsókn á laugardaginn í hádegisleiknum kl 11:45









