Tottenham heldur áfram að hafa það frekar auðvelt í Evrópukeppninni og vann afgerandi 3-0 sigur á Tromsö fyrr í kvöld, á White Hart Lane.
Byrjunarliðið: Lloris; Naughton, Dawson, Kaboul, Rose; Dembele, Sandro; Lamela, Holtby, Sigurdsson; Defoe. Komu inná: Vertonghen, Eriksen, Paulinho,
Ónotaðir varamenn: Friedel, Townsend, Kane, Soldado.
Það var ljóst alveg frá byrjun leiksins að það var töluverður getu munur á þessum liðum. Norðmennirnir hafa verið í töluverðu basli heima fyrir og það hélt bara áfram í London. Jermain Defoe sem hefur öflugur í byrjun móts, eins og vanalega, kom okkar mönnum á bragðið á 22 mínútu eftir frábæra sendingu frá Argentíska galdramanninum Erik Lamela sem var að byrja sinn fyrsta leik. 1-0. Lewis Holtby var síðan næstur í röðinni á 30. mínútu í því að mata Defoe, og það með enn betri sendingu en í fyrra markinu. Staðan í hálfleik var því 2-0 og allt í góðu fyrir utan meiðsli hjá Danny Rose. Það bjuggust svo flestir við markaveislu í seinni hálfleik. Svo var aldeilis ekki og virtust hafa slokknað algjörlega á Tottenham. Christian Eriksen náði þó að bæta leikinn aðeins eftir að hafa komið inn á fyrir meiddan Dembéle. Eriksen skoraði síðan magnað mark í anda Gareth Bale á 86. mínútu, stórkostlegt mark í bláhornið. Það gerðist ekki mikið eftir það nema að Kaboul haltraði útaf í lokin og því 3 meiddir úr leiknum. Leiknum lauk því 3-0, frekar svekkjandi eftir að vera í 2-0 stöðu í hálfleik með jafn frábært lið og við eigum.
Jermain Defoe er nú kominn með 137 mörk fyrir klúbbinn, einu marki frá fimmta markahæsta leikmanni í sögu klúbbsins George Hunt. Hann er einnig orðinn næst markahæstur í evrópukeppnum í sögu klúbbsins, með 20 mörk, tveim á eftir Martin Chivers.
Maður leiksins: Jermain Defoe
Næsti leikur: Cardiff City á Cardiff City Stadium, á sunnudaginn, 22 september, klukkan: 15:00









