Norwich hafði ekki tapað gegn Tottenham í síðustu 3 viðureignum sínum á White Hart Lane, áður en liðin mættust fyrr í dag. Spurs sigraði nokkuð örugglega 2-0 og endaði þar með rugl gengi Norwich á okkur heimavelli með góðri spilamennsku í dag.
Byrjunarlið: Lloris; Walker, Dawson, Vertonghen, Rose; Dembele, Paulinho; Townsend, Eriksen, Sigurdsson; Soldado. Komu inná: Holtby, Sandro, Lamela
Ónotaðir varamenn: Friedel, Kaboul, Naughton,Defoe.
Tottenham átti 23 skot og var 69% með boltann í leiknum og segir það til um hversu mikla yfirburði Spurs hafði í dag, þeir byrjuðu af krafti og héldu því út nánast allan leikinn. Gylfi hélt uppteknum hætti úr landsleikjum Íslands og var frábær í dag. Eftir góðan undirbúning frá Christian Eriksen og Roberto Soladado, opnaði Gyldi markareikning sinn á 26 mínútu með góðu marki, 1-0. Það voru síðan ekki liðnar nema 4 mínútur af seinni hálfleik, þegar Gylfi var búinn að bæta við öðru marki, en eftir góða fyrirgjöf frá Paulinho og gott hlaup hjá Gylfa, þurfit hann aðeins að pota boltanum yfir línuna. Á þessum tímapunkti voru stuðningsmenn Spurs á Whit Hart Lane, byrjaðir að syngja „Who needs Gareth Bale, we got Sigurdsson“ og „The Sig, The Sig, The Sig is on fire“. Spurs hefði klárlega átt að skora fleiri mörk í þessum leik, en svo fór sem fór og leikurinn endaði 2-0.
Flestir leikmenn liðsins spiluðu nánast óaðfinnanlega í dag, en þar báru af þeir Danny Rose, Christian Eriksen og Gylfi Sigurðsson. Rose er heldur betur að stimpla sig inn og virðist það hafa verið rétt ákvörðun hjá Boas að gefa honum traustið fram yfir meistara Ekotto. Gylfi skoraði tvö mörk og var ógnandi, en augljóslega dálítið tæpur eftir landsleikina. Christian Eriksen var síðan alveg magnaður, sérstaklega í fyrri hálfleik og virðist eftir fyrsta leik, vera 100% sá leikmaður sem okkur vantaði og keyptur á aðeins 11,5m punda, frábær kaup. Hugo Lloris, Kyle Walker og Andros Townsend fá síðan smá skammir hérna í lokin, Hugo fyrir kjánaskap síðustu mínúturnar sem hefðu getað kostað mark og svo bakkabræður á hægri kantinum, sem virðast hreinlega vera takmarkaðir í knattspyrnulegri hugsun. Walker tekur of rangar ákvarðanir oft á tíðum og Townsend er of eigingjarn, en er væntanlega bara svona ákafur í að sanna sig. Þeim er fyrirgefið í bili, en það virðist samt vera þannig að ensku leikmennirnir okkar séu verstir í að lesa leikinn af leikmönnum liðsins og einfaldlega mest takmarkaðir þegar kemur að hugsun og ákvarðanatöku í knattspyrnu.
Maður leiksins: Gylfi Sigurðsson
Næsti leikur: Tromsö á White Hart Lane, á fimmtudaginn 19 september, klukkan 19:05









