Mikilvægur sigur í kveðjuleik Defoe á WHL

0
656

Byrjunarlið Tottenham: Lloris, Walker, Rose, Verthongen, Dawson, Lennon, Paulinho, Dembele, Bentalab, Eriksen, Adebayor. 

Byrjunarlið Everton: Howard, Baines, Jaglielka, Distin, Coleman, Mirallas, Naismith, McCarthy, Garry, Osman, Pienaar.

Ljóst var að það yrði hart barist þegar Everton mætti á White Hart Lane á sunnudaginn, en þessi lið eru í harðri baráttu um evrópusætin ásamt Liverpool og United. Fyrir þennan leik var Tottenham í 6. Sæti en Everton í einu sæti fyrir ofan, en þó aðeins einu stigi meira. Liðin gátu því haft sætaskipti sem varð raunin, þar sem að Spurs sigraði 1-0 eftir frábæra sendingu frá Kyle Walker á Adebayor, sem kláraði stórkostlega og skoraði þar með sitt 6 mark. Tógó maðurinn hefur verið í frábæru formi síðan að Sherwood tók hann aftur inn í liðið, en sóknarmaðurinn hafði verið í hálfgerðri útlegð hjá AVB.

Spurs liðið spilaði kannski ekki stórkostlegan bolta í þessum leik, en þetta var hörku lið sem þeir voru að mæta og það verður bara að teljast vel gert að sigra Everton 1-0, þar sem þeir hafa verið frábærir í vetur og sérstaklega sóknarlega. Þetta var þar með 10 leikurinn í úrvalsdeildinni í vetur þar sem Tottenham heldur hreinu, ótrúlegt að hugsa til þess miðað við varnarleikinn sem liðið hefur sýnt oft á tíðum í vetur, svo dæmi sé tekið þá hafa lið eins og Chelsea og Arsenal haldið hreinu 11 sinnum, en þau eru talinn hafa bestu vörnina í deildinni.

 

Leikurinn gegn Everton var því miður seinasti leikur Jermain Defoe á White Hart Lane, að minnsta kosti í úrvalsdeildinni, en hann er á leiðinni frá Tottenham í annað skiptið og nú til Toronto í MLS deildina. Það er óhætt að segja að Jermain Defoe hafi haft mikil áhrif á okkur Spursara í gegnum tíðina og það mun koma nánari umfjöllun um hans feril hjá Tottenham, hér þegar hann fer endanlega.