Adebayor og Newcastle

0
713

Seinasta miðvikudag áttu okkar menn leik við Newcastle á St. James’s Park. Tottenham hefur átt í töluverðum vandræðum þar undanfarin ár, en það reyndist ekki vera raunin í seinustu viku. Reyndar verður að viðurkennast að það vantaði mikið í Newcastle liðið með fjarveru Tiote og Remy, en auk þess höfðu þeir nýverið selt sinn allra besta leikmann Cabaye. Newcastle hafði tapað tveim síðustu leikjum 3-0 á undan leiknum gegn Tottenham.

Flestir stuðningsmenn Spurs voru frekar hissa þegar þeir sáu liðsuppstillingu Tim Sherwood fyrir leik. En ýmsar efasemdar raddir hafa verið í kringum hann, þrátt fyrir frábæran árangur hans síðan að hann tók við. Þrálæti hans við það nota frekar hinn 19 ára Bentelab og geyma landsliðsmenn hefur einnig pirrað margan Spursaran, aftur, þrátt fyrir það að hann sé einnig búinn að standa sig frábærlega.

Byrjunarliðið var eftirfarandi: Lloris, Walker, Naughton, Verthongen, Kaboul, Capoue, Paulinho, Bentelab, Dembéle, Lennon, Adebayor. 

Kaboul var því kominn í liðið eftir langa fjarveru vegna meiðsla, en það er óhætt að segja að Tottenham stuðningsmenn hafa saknað þess að hafa hann heilan síðustu tvö tímabil. Dawson fór því á bekkinn, líklega við fögnuð einhverra, en þrátt fyrir að vera magnaður leiðtogi og með 100% Spurs-hjarta, þá virðist hann ekki alveg ráða við verkefnið sem stendur, en hann hefur þó ófáum sinnum snúið tilbaka og sýnt frábæran leik, þannig það er algjör óþarfi að gefa upp trúna á honum strax.

Verthongen var áfram í vörninni eftir að hafa snúið til baka í síðustu leikjum og það er gríðarlegur munur að sjá vörnina með honum, þá sérstaklega varðandi það hvað boltinn ferðast mun hraðar úr vörn í sókn. 

Bentelab hélt sæti sínu áfram en var færður í hlutverk sem hann var vanur að spila með U-21 árs liðinu, þar að segja fyrir framan djúpa miðjumanninum, en hann hefur verið að sinna miklum varnarskyldum í þeim leikjum sem hann hafði spilað með aðalliðinu fyrir þennan leik.

Capoue kom inn í byrjunarliðið og í stöðu djúps miðjumanns, en þar er hann vanur að spila. Dembéle, Paulinho, Lennon og Bentelab voru því í frekar frjálsri rullu sóknarlega.

Leikurinn:

Það er óhætt að segja að Tottenham hafi stjórnað leiknum frá upphafi til enda. Newcastle voru mjög takmarkaðir og beitu aðallega löngum boltum, sem Kaboul og Verthongen virtust ekki eiga í miklum vandræðum með.

Það var hinn umtalaði Bentaleb sem átti allan heiðurinn á fyrsta marki Spurs í leiknum, þegar hann hljóp upp vinstri kantinn og hristi af sér hinn sterka Sissoko, hann átti síðan góðan bolta inn í teig sem hinn magnaði Adebayor sem potaði knettinum í markið 1-0 19. mínútu. Þannig var staðan í hálfleik og leikur Spurs virkaði mjög þéttur og öruggur.

Seinni hálfleikur var svo sannkölluð veisla fyrir Tottenham, þar sem að allt opnaðist í vörn Newcastle þegar þeir reyndu að jafna leikinn. Paulinho skoraði annað mark Spurs á 52. mínútu, en þá fylgdi hann eftir frákasti frá skoti Adebayor. Adebayor hélt áfram að vera hættulegur og setti þriðja markið á afar sérstakan en glæsilegan hátt. Hann  sparkaði boltanum þannig að hann skaust í jörðina og yfir alla sem fyrir voru og í markið. Það var síðan Nacer Chadli sem lauk veislunni með stórglæsilegu marki, hann fékk þá boltan eftir hælspyrnu frá Bentaleb rétt fyrir utan vinstra vítateigshornið og smellti óverjandi skoti í samskeytin fjær. Hreinlega óskandi að hann sýni meira af þessari spyrnutækni í framtíðinni, en Sherwood myndist á það í viðtali eftir leik, að hann væri vanur að gera þetta á æfingum.

Adebayor

Hvað er hægt að segja um þennan furðufugl, flestir virtust vera á þeirri skoðun að hann væri bara hættur að reyna, fyrst hann var komin á samning hjá klúbbnum. En það hafði verið umræðan um þennan leikmann að hann spilaði bara vel þegar hann væri að reyna vinna sér inn samning eða eitthvað slíkt. Hann var allavega skelfilegur í fyrra, en það geta verið fleiri ástæður heldur en nýr samningur fyrir því. Eins og t.d. að kerfi AVB hafi einfaldlega ekki hentað honum og að AVB væri ekki að ná að hvetja hann nóg. En Adebayor var einmitt frábær undir Harry Redknapp, sem er talinn ná vel til leikmanna. Kannski þoldi Adebayor ekki agan sem AVB var að reyna ná fram hjá Spurs, en hann sendi Ekotto meðal annars burt vegna þess, og einnig vegna þess að hann var talinn hafa slæm áhrif á Adebayor. En hvað um það, hægt að standa endalaust í svoleiðis pælingum. Núna er Adebayor að spila fyrir Tim Sherwood sem er talinn hafa svipaðan stíl og Harry Redknapp að vissu leyti. Það virðist virka heldur betur, því eftir að Adebayor snéri úr útlegðinni sem hann var í hjá AVB, hefur hann verið stórkostlegur og skorað 9 mörk. Útlegðin sem hann var í hjá AVB var þó þeim báðum að kenna og Adebayor hefur viðurkennt það. Það er samt óskandi að Tim haldi áfram að nudda sjálfstraustið hjá honum og að hann haldi þar af leiðandi áfram að spila svona eins og brjálæðingur. Aðeins þá eigum við möguleika á að ná þessu blessaða 4. Sæti

Bentelab

Drengurinn var einfaldlega stórkostlegur í leiknum, hann er ótrúlega efnilegur og ekki ólíklegt að við munum vera að ergja okkur enn og aftur út í Daniel Levy, eftir nokkur ár. Rosalega sterkt að fá svona strák í gegnum unglingstarfið, en hann var maður leiksins ásamt Hugo Lloris sem varði stórkostlega í leiknum.