Jafntefli gegn Sunderland

0
845

Á laugardaginn var gerði Tottenham jafntefli við Sunderland á útivelli 2-2 þar sem Chadli og Eriksen skoruðu mörk Tottenham.

Tottenham byrjaði leikinn með látum og staðan orðin 0-1 eftir einungis 2. mínútur.   En Adam var ekki lengi í paradís því Sunderland hafði jafnað leikinn strax á 4. mínútu.
Tottenham var miklu betra liðið í byrjun og herjuðu stíft á lið Sunderland án þess að skora annað mark.   Dembele átti til að mynda þrumuskot fyrir utan teig sem small ofarlega í stönginni á marki Sunderland.

Seinni hálfleikur byrjaði með álíka látum og sá fyrri hjá Tottenham og liðið náði aftur forystunni á 3. mínútu síðari hálfleiks þegar Eriksen ýtti boltanum yfir línuna af stuttu færi.  Verðskulduð forysta Tottenham.   Tottenham hélt áfram að vera sterkara liðið á vellinum og Lamela komst næst því að klára leikinn þegar hann átti flott skot fyrir utan teig sem fór í þverslánna á marki Sunderland.
En Tottenham fékk að gjalda fyrir það að hafa ekki gert útum leikinn þegar Sunderland jafnaði leikinn á 82. mínútu þegar Kane varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

Jafntefli 2-2 staðreynd,  sem verður að teljast tvö töpuð stig miðað við yfirburðina og góða spilamennsku heilt yfir.

Með boltann
Sunderland 38%
Tottenham 62%

Skot/Á mark
Sunderland 7/1
Tottenham 16/6

Hornspyrnur
Sunderland 6
Tottenham 5