Á laugardaginn var gerði Tottenham jafntefli við Sunderland á útivelli 2-2 þar sem Chadli og Eriksen skoruðu mörk Tottenham.
Tottenham byrjaði leikinn með látum og staðan orðin 0-1 eftir einungis 2. mínútur. En Adam var ekki lengi í paradís því Sunderland hafði jafnað leikinn strax á 4. mínútu.
Tottenham var miklu betra liðið í byrjun og herjuðu stíft á lið Sunderland án þess að skora annað mark. Dembele átti til að mynda þrumuskot fyrir utan teig sem small ofarlega í stönginni á marki Sunderland.
Seinni hálfleikur byrjaði með álíka látum og sá fyrri hjá Tottenham og liðið náði aftur forystunni á 3. mínútu síðari hálfleiks þegar Eriksen ýtti boltanum yfir línuna af stuttu færi. Verðskulduð forysta Tottenham. Tottenham hélt áfram að vera sterkara liðið á vellinum og Lamela komst næst því að klára leikinn þegar hann átti flott skot fyrir utan teig sem fór í þverslánna á marki Sunderland.
En Tottenham fékk að gjalda fyrir það að hafa ekki gert útum leikinn þegar Sunderland jafnaði leikinn á 82. mínútu þegar Kane varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.
Jafntefli 2-2 staðreynd, sem verður að teljast tvö töpuð stig miðað við yfirburðina og góða spilamennsku heilt yfir.
Með boltann
Sunderland 38%
Tottenham 62%
Skot/Á mark
Sunderland 7/1
Tottenham 16/6
Hornspyrnur
Sunderland 6
Tottenham 5









