Markalaust jafntefli í Belgrad

0
766

Tottenham hófu atlögu sína að Evrópudeildinni þetta tímabilið í kvöld með 0-0 jafntefli við Partisan Belgrade á útivelli í Serbíu. Pochettino gerði nokkrar breytingar á liðinu fyrir leikinn og sumir leikmenn voru eftir heima í London. Þar sem sigur í Evrópudeildinni gefur sæti í Meistaradeildinni á næsta ári er augljóst að liðin munu leggja meiri áherslu á keppnina en áður, enda til mikils að vinna.

Leikurinn í kvöld einkenndist af lélegum velli og frábærri stemningu sem stuðningsmenn Partisan héldu uppi allan leikinn. Það hefur án efa verið erfitt fyrir leikmenn Spurs að halda einbeitingunni í hávaðanum á vellinum. Federico Fazio og Benjamin Stambouli voru báðir í fyrsta sinn í byrjunarliði Spurs og stóðu þeir sig báðir vel, þá sérstaklega Stambouli sem var afar yfirvegaður á miðjum vellinum. Hann verður fastamaður í liðinu áður en langt er liðið.

Fátt var um færi og má í raun segja að það næsta sem Spurs komust marki var strax á 1. mínútu þegar Harry Kane átti skot í slánna eftir hornspyrnu. Heimamenn í Partisan bitu meira frá sér í seinni hálfleik og áttu fleiri færi en Spurs þegar leið á leikinn. Jafntefli eru ekki slæm úrslit fyrir liðið í þessum leik og það sama mun eiga við útileikinn gegn Besiktas eftir nokkrar vikur.

Lið Spurs: Lloris; Naughton, Fazio, Vertonghen, Davies; Stambouli(Capoue 72), Bentaleb; Townsend(Lamela 59), Paulinho(Soldado 60), Lennon; Kane