Daginn
Þá er komið að seinni hópferð Tottenhamklúbbsins á Íslandi , tímabilið 2014-2015.
Uppselt hefur verið í síðustu ferðir klúbbsins og færri komist að en vilja, enda mjög gott verð á þessum hópferðum.
Fyrirhuguð hópferð verður í mars og farið verður á leik Tottenham – Leicester.
Verðið á þessari ferð er einstaklega gott og verður ekki gert ráð fyrir öðru en að það seljist hratt upp í þessa ferð eins og venjan hefur verið.
** Þessi ferð er tilvalin Jólagjöf fyrir Tottenhamaðdáendur og er ekkert mál að útvega gjafabréf sé óskað eftir því **
Ferðatilhögun er eftirfarandi :
Tottenham – Leicester
White Hart Lane , laugardaginn 21. mars. ( ** einhverjar líkur á því að leikur verði fluttur á sunnudag , 100 % ef Tottenham kemst í 16-liða úrslit Evrópudeildar ** )
FLUG
KEF – LONDON GATWICK Föstudagur 20. mars kl. 07.00 lent úti kl. 9.55 WOW Air
LONDON GATWICK – KEF Mánudagur 23. mars kl. 19.40 heimkoma kl. 22.50 WOW Air
Innifalið er 20kg taska báðar leiðir ásamt 5kg handfarangri.
GISTING
Travelodge London Stratford í þrjár nætur ( án morgunmats )
Full English morgunverðarhlaðborð í boði á morgnana á £ 7.65 – þarf ekki að panta fyrirfram.
Stílhreint og einfalt hótel í Stratford, nálægt Ólympíusvæðinu í London.
Veitingastaður / Bar á hótelinu opinn allan sólarhringinn – hér er týpískur matseðill fyrir Travelodge ( getur verið smá breytilegur milli hótela ) – http://www.travelodge.co.uk/assets/img/bar_cafe/bar_cafe_menu.pdf
Nokkura mínútna gangur á Stratford stöðina
Central Line í Underground beint inn í miðbæ London – Oxford Circus ( 15 mín lestarferð )
Westfield Shopping Centre er þarna rétt hjá þar sem eru yfir 300 verslanir og 70 veitingastaðir – ásamt kvikmyndahúsi og spilavíti.
http://uk.westfield.com/stratfordcity/
Umsögn gesta á Tripadvisor um hótelið :
http://www.tripadvisor.com/Hotel_Review-g186338-d2554880-Reviews-Travelodge_London_Stratford-London_England.html
RÚTA
Rúta til og frá flugvelli í London
MIÐI + MEMBERS
Miði á leikinn á langhlið ( Austur stúka ) ásamt skráningu í klúbbinn úti
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
Verð : 83.990.- Miðað við 2 í herbergi
Verð miðast við meðlimi Tottenhamklúbbsins á Íslandi sem greitt hafa árgjaldið 2014-2015.
Kr. 2.500.- bætist við verð þeirra sem EKKI hafa greitt árgjald Tottenhamklúbbsins á Íslandi fyrir tímabilið 2014-2015.
Verð fyrir einstaklingsherbergi er 99.990.-
Möguleiki er á þriggja manna herbergi á meðan slík eru til en verðið fyrir þriggja manna herbergi er kr. 79.990.-á mann.
· Við skráningu í ferðina , þarf eftirfarandi að koma fram fyrir alla sem ætla í ferðina : Senda skal tölvupóst á spurs@spurs.is við skráningu.
o Nafn
o Kennitala
o Heimilisfang
o GSM númer
o E-mail
o Family Room ( Gistirými fyrir 3 ) / Double room / Twin room ( double room er með einu stóru rúmi / twin room með tveimur rúmum. )
· Greiða þarf staðfestingargjald kr. 25.000.- á mann við bókun á ferð. Eftirstöðvar greiðast svo í kringum miðjan febrúar.
( staðfestingargjald þetta fæst ekki endurgreitt nema hægt verði að fylla sætið )
Staðfestingargjaldið skal greiða inn á reikning Tottenhamklúbbsins : 0537 – 26 – 3110 , kt. 630103-3550
og senda skal greiðslukvittun á spurs@spurs.is
· Þeir sem eru þegar skráðir sem meðlimir Tottenhamklúbbsins í Bretlandi borga sem nemur 8.000.- minna fyrir ferðina. Gefa þarf þá upp númer meðlimakorts við skráningu.
· Tottenhamklúbburinn mun bjóða uppá það að greiða staðfestingargjald og eftirstöðvar með kreditkorti. Kostnaður vegna þess er 2 % ( 500 kr fyrir staðfestingargjaldið og ef eftirstöðvar eru 58.990 , þá er kostnaður þar 1.200.- ) Senda þarf þá kortanúmer með bókun.
· Hægt er að kaupa gjafabréf hjá einhverjum stéttarfélögum frá WOW air sem hægt er að nota í ferðina. Gjafabréf þessi eru seld af stéttarfélögum fyrir lægri pening en upphæð þeirra er t.d. er hægt að kaupa gjafabréf að verðmæti 25.000 hjá VR , en aðeins er greitt 17.000.- fyrir slíkt gjafabréf , Þannig að með slíkum gjafabréfum getur fólk lækkað ferðakostnaðinn. Mæli eindregið með því að fólk hafi samband við sín stéttarfélög og ath. hvort þau séu að selja gjafabréf frá WOW.
Stéttarfélög sem vitað er að bjóða uppá gjafabréf hjá WOW:
o VR
o Félag Íslenskra hjúkrunarfræðinga
o Kennarasamband Íslands
· Tottenhamklúbburinn áskilur sér rétt til að fella niður þessa ferð ef næg þátttaka fæst ekki. Staðfestingargjald uppá kr. 25.000.- verður þá endurgreitt til þeirra sem hafa greitt það.
Kv
Stjórnin









