Tottenham lék í gær sunnudag við Aston Villa og var spilað á heimavelli Aston Villa í Birmingham.
Fyrir leikinn hafði Aston Villa tapað 5 leikjum í röð og hafði ekki skorað mark í þessum 5 leikjum.
Aston Villa voru sterkari aðilinn framan af og átti Benteke til að mynda hörkuskot sem fór í samskeytin á marki Tottenham. Stuttu síðar komst Aston Villa í 1-0 eftir frekar slakan varnarleik Tottenham. Adebayor fékk gullið tækifæri til að jafna metin fyrir hálfleik þegar hann komst einn í gegn en lét Guzan í marki Aston Villa verja frá sér.
Jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik þó Tottenham hafi verið meira með boltann.
Á 65. mínútu dró svo til tíðinda þegar Benteke var rekinn af velli með rautt spjald fyrir að setja hendina í andlitið á Mason þegar þeir voru eitthvað að rífast. Strangur dómur en líklega réttur. Eftir þetta fór Tottenham að sækja meira og settu pressu á lið Aston Villa.
Á 84. mínútu tók varamaðurinn Lamela hornspyrnu frá hægri sem fór yfir allan pakkann og á fjærstöng mætti Chadli sem setti boltann í markið viðstöðulaust. Staðan 1-1 og lítið eftir. Það var svo á 90. mínútu sem Tottenham fékk aukaspyrnu fyrir utan teig Aston Villa, Kane og Lamela voru að rífast um hvort ætti að taka spyrnuna og fór svo að Kane hafði betur og hélt á boltanum. Aukaspyrna Kane fór svo í varnarvegg Aston Villa breytti um stefni og endaði í netinu … 1-2 og fögnuður Tottenhammanna mjög mikill.
Með sigrinum komst Tottenham uppí 8. sæti deildarinnar.









