Tottenham lék í gær við Aston Villa á útivelli og fór með sigur af hólmi 0-4 þar sem Gareth Bale fór á kostum og skoraði þrennu ( hat-trick ) og Defoe var með eitt.
Tottenham byrjaði leikinn af miklum krafti þar sem Aston Villa komst varla útúr sínum eigin vítateig fyrstu 10 mínúturnar af leiknum. Tottenham voru búnir að fá ca. 8 hornspyrnur þegar um 20 mínútur voru liðnar af leiknum.
Liðið var að fá ágætis færi sem voru ekki að nýtast og fjölmörg skot á markið sem Guzan í marki Aston Villa varði. Guzan varði sérstaklega vel frá Bale á 11 mínútu þegar boltinn var á leið efst í hornið þegar Guzan náði að blaka boltanum yfir markið.
Staðan í hálfleik 0-0 þrátt fyrir algera yfirburði Tottenham í fyrri hálfleik.
Tottenham hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik og sóttu mikið án þess að fá mörg afgerandi færi. Aston Villa vöknuðu reyndar aðeins til lífsins í síðari hálfleik og byrjaði hálfleikinn mun betur en þeir voru að spila í fyrri hálfleik.
Það var svo á 57. mínútu sem fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós. Naughton átti þá hnitmiðaða sendingu í gegnum vörn Aston Villa á Defoe sem tók á móti boltanum og setti hann á milli fóta Guzan sem kom á móti honum. Staðan 0-1 og það fyllilega skilið. Aðeins fjórum mínútum síðar kom annað mark Tottenham og fyrsta mark Bale í leiknum. Defoe fékk þá sendingu innfyrir vörn Aston Villa, en varnarmaður Aston Villa náði að renna sér í boltann og sparka honum til hliðar, beint á Bale sem lék boltanum innfyrir varnarmann Aston Villa og hljóp svo á eftir boltanum, komst einn gegn Guzan og kláraði færið af yfirvegum með að leika framhjá Guzan og setja boltann í tómt markið.
Á 73. mínútu kom þriðja mark Tottenham. Lennon lék þá boltanum frá hægri inn að vítateig Aston Villa, þar sem varnarmenn voru sofandi og skildu Bale eftir óvaldaðan. Lennon sendi boltann á Bale sem var nálægt vítapunktinum, Bale tók á móti boltanum og setti hann hnitmiðað neðst í hægra hornið , óverjandi fyrir Guzan í marki Aston Villa.
Gylfi Sigurðsson kom inná á 79. mínútu , og aðeins 5 mínútum síðar var hann búinn að leggja upp mark. Walker var þá með boltann á hægri vængnum og tók Gylfi flott hlaup inní teiginn, fékk sendingu frá Walker. Gylfi lék að markinu og sendi svo fyrir á Bale sem tók á móti boltanum og hamraði honum í markið af stuttu færi. Staðan 0-4 og Bale kominn með þrennu, sína fyrstu þrennu fyrir Tottenham.
Stuttu síðar var flautað til leiksloka og góð þrjú stig í höfn hjá Tottenham. Spilamennskan í leiknum var mjög góð og sigurinn sannarlega sannfærandi.
Lið Tottenham í leiknum :
Lloris – Walker – Gallas – Vertonghen – Naughton – Lennon – Dembele ( Parker 66 ) – Sandro – Bale ( Townsend 85 ) – Defoe – Adebayor ( Gylfi 79 )
Ónotaðir varamenn :
Friedel – Dawson – Caulker – Livermore
Tölfræði úr leiknum ( bbc.co.uk )
Með boltann ( % )
Aston Villa 39 % Tottenham 61 %
Skot ( á markið )
Aston Villa 4 ( 1 ) Tottenham 20 ( 16 )
Hornspyrnur
Aston Villa 2 Tottenham 16









