Evrópu jafntefli

0
873

Tottenham Hotspur gerði jafntefli við Maribor frá Slóveníu í Evrópudeildinni 1-1 í Slóveníu.

Andre Villas-Boas gerði þrjár breytingar á liði sínu frá síðasta deildarleik gegn Chelsea, Lloris kom í markið í stað Friedel, Naughton inn fyrir Gallas og Townsend fyrir Dempsey sem þýddi að Vertonghen fór í miðvörðinn og Naughton í vinstri bakvörðinn annars var liðið skipað eftirtöldum leikmönnum, Lloris, Walker, Caulker, Vertonghen, Naughton, Lennon(c), Sandro, Huddlestone, Townsend, Gylfi og Defoe.

Gestirnir frá Lundúnum byrjuðu betur án þess að ógna markinu að neinu ráði, Tottenham voru mun meira með boltann meðan leikmenn Maribor lágu aftarlega á vellinum og reyndu að sækja hratt þegar færi gafst.  Allt virtist stefna í markalausan og bragðdaufan fyrrihálfleik þegar heimamenn skoruðu nokkuð gegn gangi leiksins rétt fyrir hálfleik, staðan 1-0 fyrir Maribor.

Leikmenn Tottenham mættu mun einbeittari til leiks í síðarihálfleik.  Andre Villas-Boas gerði eina skiptingu í hálfleik Townsend fór útaf og inná kom Falque.  Eftir þónokkra pressu í síðari hálfleik uppskáru leikmenn Tottenham loksins árangur erfiðins,  Gylfi átti þá sendingu út til vinstri á Falque sem reyndi sendingu fyrir markið sem markmaður Maribor sló útí teiginn þar sem Defoe tók við boltanum og átti þrumuskot að marki sem varnarmaður Maribor bjargaði á línu en boltinn barst til Gylfa sem kom boltanum inn, staðan orðin 1-1, fyrsta mark Gylfa í Evrópudeildinni fyrir Tottenham staðreynd og 58. mínútur búnar af leiknum.

Eftir markið opnaðist leikurinn töluvert og næsta færi fékk Maribor og höfðu auðveldlega getað komist í 2-1 en skot sóknarmannsins fór í hliðarnetið.  Á 73. mínútu gerðist svo umdeilt atvik, Kyle Naughton prjónaði sig laglega inní teiginn og virtist vera brotið á honum en dómari leiksins, sem annars átti tiltölega góðan leik, sá sér ekki fært að dæmi víti heldur spjaldið Naughton fyrir leikaraskap.

Andre Villas-Boas gerði 2 skiptingar í viðbót í seinnihálfleik, Gylfi fór útáf á 75. mínútu og inná kom Dempsey og Sandro fór útáf á 84. mínútu og inná kom Livermore.  Loka færi leiksins áttu svo Tottenham þegar Vertonghen átti hörkuskot af rúmlega 30 metra færir en boltinn fór rétt framhjá markinu.  Staðan 1-1 og enn eitt jafnteflið hjá Tottenham í Evrópudeildinni staðreynd.  Eftir þennan leik eru Tottenham með 3 stig í þriðja sæti riðilsins en efstir eru Lazio með 5 stig, öðru sæti Maribor með 4 stig og restina reka Panathinaikos með 2 stig.  Næstu leikur Tottenham í Evrópudeildinni er aftur gegn Maribor þá á heimavelli 8. nóvember.

 

 

DEILA
Fyrri fréttTap gegn Chelsea
Næsta fréttSigur á Southampton