Tottenham lék í dag á útivelli gegn Fulham á Craven Cottage í London. Tottenham hafði sigur 0-3 þar sem Sandro og Defoe 2 skoruðu mörkin.
Leikurinn var ekki mikið fyrir augað í fyrri hálfleik og ekki mikið sem var að gerast. Bale var spjaldaður fyrir dýfu í öðrum leiknum í röð, leiðinlegur ávani sem Bale virðist vera kominn með. Staðan í hálfleik var 0-0.
Eftir 10 mínútna leik í síðari hálfleik komst Tottenham yfir með marki Sandro. Hann átti þá skot af um 35m færi sem Schwarzer í marki Fulham hefði átt að verja en inn fór boltinn. Það var svo á 5 mínútna kafla í síðari hálfleik þar sem Defoe gerði út um leikinn. Á 72. mínútu kom Defoe liðinu í 0-2 eftir frábæran undirbúning Gylfa. Gylfi prjónaði sig í gegnum vörnina hjá Fulham og lagði boltann á Defoe sem setti hann í markið. Aðeins 5 mínútum síðar skoraði Defoe aftur, nú eftir góða sendingu Dempsey innfyrir vörn Fulham og Defoe kláraði vel með skoti í fjærhornið. Frábær vinnusigur á útivelli og gott að liðið náði loks að halda hreinu.
Neikvæðir puntkar við leikinn voru þeir að Dawson og Bale meiddust báðir og hefur það verið staðfest að Bale verði frá í einhverjar vikur með Hamstring meiðsli.
Lið Tottenham í leiknum.
Lloris – Naughton – Dawson ( Gallas 17 ) – Caulker – Vertonghen – Lennon – Sandro – Dembele ( Carroll 84 ) – Bale ( Gylfi 62 ) – Dempsey – Defoe
Ónotaðir varamenn :
Friedel – Walker – Falque – Livermore
Tölfræði úr leiknum :
Með boltann
Fulham 42 % Tottenham 58 %
Skot / á markið
Fulham 8 / 2 Tottenham 10 / 6
Hornspyrnur
Fulham 2 Tottenham 1









