Nokkrir leikmenn Tottenham tóku þátt í landsleikjum með sínum landsliðum á föstudaginn var. Hér eru nokkrar fréttir af leikmönnum Tottenham sem voru í eldlínunni á föstudaginn.
Gylfi Sigurðsson spilaði allan leikinn með Íslendingum sem sigruðu lið Albana 1-2. Skoraði Gylfi jafnframt sigurmarkið í leiknum , sem hægt er að sjá hér. http://www.ruv.is/frett/albania-island-morkin
Gareth Bale spilaði allan leikinn með Walesverjum sem sigruðu nágranna sína í Skotlandi 2-1. Bale skoraði bæði mörkin í leiknum, það síðara var sérstaklega glæsilegt. Hægt er að sjá markið hér
http://www.101greatgoals.com/gvideos/gareth-bales-fantastic-goal-to-secure-wales-win-v-scotland/
Mousa Dembele og Jan Vertonghen spiluðu báðir allan leikinn með sterku liði Belga sem sigraði Serbíu á útivelli 0-3.
Kyle Walker spilaði allan leikinn og Aaron Lennon í 80 mínútur þegar Englendingar áttu ekki í vandræðum með lið Andorra í 5-0 sigri. Jermain Defoe kom ekki við sögu í leiknum.
Clint Dempsey spilaði allan leikinn fyrir Bandaríkjamenn sem sigruðu lið Antique and Barbuda á útivelli 1-2.
Hugo Lloris spilaði allan leikinn í marki Frakka sem töpuðu óvænt heima gegn Japönum í æfingarleik 0-1.
Sandro spilaði í 8 mínútur með Brasilíu í leik á fimmtudaginn þar sem Brasilía sigraði lið Írak 6-0
Þá eru það leikirnir sem voru spilaðir síðasta þriðjudag / miðvikudag.
Gylfi Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Ísland sem tapaði fyrir Svisslendingum á laugardalsvelli 0-2 , átti Gylfi fínan leik.
Gareth Bale spilaði allan leikinn fyrir Wales sem töpuðu fyrir Króötum úti 2-0.
Jan Vertonghen spilaði í 90 mínútur og Dembele í 45 mín þegar Belgar unnu Skota 2-0.
Hugo Lloris spilaði allan leikinn með Frökkum sem náðu jafntefli úti gegn Heims- og Evrópumeisturum Spánverjum. Lloris varði átti stórgóðan leik og varði m.a. vítaspyrnu frá Fabregas.
Clint Dempsey spilaði allan leikinn og skoraði tvö mörk þegar Bandaríkjamenn unnu lið Guatemala 3-1 á heimavelli.
Sandro spilaði í uppbótartíma þegar Brasilía sigraði lið Japan 4-0.
Defoe spilaði í 67 mínútur þegar England gerði jafntefli við Pólverja á útivelli á miðvikudaginn. Kyle Walker og Aaron Lennon sátu allan tímann á varamannabekknum í leiknum.









