Harry Redknapp kom aftur á WHL í fyrsta skipti síðan hann var látinn taka pokann sinn 2012. Harry kom með lið QPR á WHL í dag og skemmst frá því að segja að lið Tottenham spilaði mjög vel og vann leikinn frekar létt 4-0 eftir að staðan var 3-0 í hálfleik.
Chadli koma Tottenham á bragðið og Dier kom Tottenham í 2-0 áður en Chadli gerði sitt annað mark og Tottenham var komið í 3-0 fyrir hálfleik.
Aðeins eitt mark leit dagsins ljós í seinni hálfleik þegar Adeybayor skoraði.
Þriðja mark Tottenham í dag var einkar glæsilegt , þar sem Tottenham lék boltanum á milli sín 48 sinnum áður en Lamela átti frábæra sendingu á Chadli sem skoraði með skalla af markteig.
Lamela var aftur mjög góður og lagði upp tvö mörk og er því með 4. stoðsendingar í síðustu tveim leikjum !! vonandi fyrir Tottenham að hann finni formið sitt í vetur, enda miklir hæfileikar sem búa í honum.









