Saga Tottenham Hotspur Football Club

1882 Félagið stofnað af drengjum úr Hotspur krikket klúbbnum ásamt drengjum úr málfræðiskóla svæðisins. Nafnið "Hotspur FC" var samþykkt.
1883 Félagið endurskipulagt undir forsæti Hr. Jonh Ripsher. Litir félagsins – dökkbláir. Leikir spilaðir á Tottenhammýri.
1884 Nafni félagsins breytt í Tottenham Hotspur Football and Athletic Club.
1885 Fyrsti leikur spilaður gegn St. Albans í LondonAssociation Cup. Spurs sigra 5-2. Litum félagsins er breytt í ljósbláa og hvíta helminga. Fyrsti bankareikningur, 9 skildingar.
1887 Fyrsti leikur gegn Arsenal, leiknum frestað 15 mínútum fyrir leikslok vegna myrkurs. Spurs voru 2-1 yfir.
1888 Spurs flytja á einkavöll í Northumberland Park, þar sem fyrsti aðgangseyrir að upphæð 3 pence er innheimtur.
1890 Litum félagsins er breytt í rauðar treyjur með dökkbláum stuttbuxum.
1895 Spurs verða atvinnumannafélag.
1896 Metaðsókn, 6000 manns, sér vináttuleik gegn Aston Villa. Spurs ganga í 1. deild Suðurdeildarinnar. Litum félagsins er breytt í súkkulaðibrúnan og gulllitaðan.
1897 Tottenham komast í fyrsta bikarúrslitaleik sinn, og tapa 0-2 á móti heimaliðinu Wellingborough í góðgerðarkeppni.
1898 Félagið verður að hlutafélagi og leikur gegn Woolwich Arsenal dregur að sér metaðsókn, 14000 manns. Litum félagsins breytt enn einu sinni, nú í hvítar treyjur og bláar stuttbuxur.
1899 Félagið flytur á núverandi stað, sem var upphaflega markaður. Völlurinn næstum því nefndur Gilpin Park en sem betur fer varð svæðið þekkt sem White Hart Lane. Fyrsti leikur haldin á WHL var vináttuleikur gegn Notts County, heildargróði var 155 pund.
1900 Loksins velgengni, Spurs unnu Suðurdeildina.
1901 Tottenham vinna FA Cup og verða í leiðinni eina utandeildarliðið, eftir stofnun Football League 1888, til að sigra þennan eftirsótta bikar.
1908 Aðgangur að 2. deild Football League tryggður.
1909 Liðið fer upp í 1. deild í fyrstu tilraun.
1915 Liðið fellur í 2. deild.
1920 Liðið fer aftur upp um deild, með 70 stig sem var met undir gömlu reglunum þar sem 2 stig voru gefin fyrir sigur
1921 Félagið vinnur FA Cup í annað sinn, með sigri á Wolverhampton Wanderers á Stamford Bridge.
1928 Liðið fellur í 2. deild með 38 stig.
1933 Liðið fer upp um deild aftur, í þetta skipti sem liðið í 2. sæti.
1934 Bygging Austurstúkunnar kláruð.
1935 Fall í 2. deild.
1938 Núverandi aðsóknarmet, 78038 manns er sett þegar Sunderland heimsækja White Hart Lane í 6. umferð FA Cup.
1950 Liðið fer upp í 1. deild.
1951 Félagið verður Englandsmeistari í fyrsta sinn.
1961 Félagið verða Englandsmeistarar í annað sinn og vinna FA Cup. Fyrsta félagið til að vinna tvöfalt síðan Preston North End og Aston Villa gerðu það árin 1889 og 1897.
1962 Aftur sigur í FA Cup.
1963 Sigurvegarar í Evrópukeppni bikarhafa. Fyrsta Breska félagið til að sigra í Evrópukeppni. Jimmy Greaves verður markahæsti leikmaður Tottenham á einu tímabili með 37 mörk.
1967 Sigurvegarar í FA Cup í fimmta sinn.
1971 Sigur í deildabikarnum í fyrsta skipti.
1972 Félagið vinna UEFA Cup í fyrsta skipti.
1973 Aftur sigurvegarar deildabikarsins, verða fyrsta félagið til að vinna keppnina tvisvar.
1974 Verða fyrsta enska félagið til að hafa spilað í þremur úrslitaleikjum í Evrópu.
1977 Fall í 2. deild.
1978 Liðið kemst aftur upp um deild í fyrstu tilraun.
1980 Gamla Vesturstúkan rifin til að bygging nýrrar geti hafist.
1981 FA Cup sigur í sjötta sinn. Steve Perryman verður leikjahæsti leikmaður félagsins þegar hann bætir met Pat Jennings sem var 472 leikir.
1982 Nýja Vesturstúkan opnuð. Sigur í FA Cup í 7. skipti á aldarafmæli félagsins.
1983 Liðið lendir í 4. sæti í deildinni og kemst í UEFA Cup í fyrsta skipti síðan 1973-74. Tottenham verða fyrsta knattspyrnufélagið til að setja hlutabréf á London Stock Exchange.
1984 Sigurvegarar UEFA Cup í annað sinn.
1985 Búningnum breytt í hvítar treyjur og hvítar stuttbuxur.
1986 Steve Perryman seldur til Oxford eftir að hafa leikið 655 deildarleiki fyrir Spurs.
1987 Spurs komast í áttunda bikarúrslitaleik sinn. Clive Allen setur nýtt félagsmet þegar hann skorar 49 mörk á einu tímabili. Búningurinn breytist aftur í hvítar treyjur með dökkbláum stuttbuxum.
1988 Fyrsti milljón punda leikmaður keyptur, Paul Stewart frá Manchester City fyrir 1,5 milljónir punda.
1989 Austurstúkunni er breytt og hún stækkuð.
1991 Sigurvegarar FA Cup í 8. sinn og komumst aftur í Evrópukeppni. Alan Sugar verður stjórnarformaður og stýrir félaginu frá gjaldþroti.
1992 Tottenham eru eitt af þeim 24 félögum sem stofna úrvalsdeildina. Paul Gascoigne gengur til liðs við Lazio fyrir 5,5 milljónir punda, sem er nýtt met.
1994 Öll stæði eru fjarlægð úr Austurstúkunni, sem nú hefur aðeins sæti.
1995 Ný Suðurstúka byggist. Félagið kaupir Chris Armstrong á 4,5 milljónir punda, sem er félagsmet.
1996 Félagið fær leyfi til að byggja nýja Norðurstúku, ásamt því að klára Suðurstúkuna og endurleggja völlinn.
1997 Nýtt félagsmet er sett þegar Les Ferdinand er keyptur á 6 milljónir punda
1998 Norðurstúkan er kláruð, sætifjöldi vallar er nú 36.257.
1999 Sigurvegarar deildabikarsins í 3. sinn.
2000 Sergei Rebrov keyptur á 11 milljónir punda – félagsmet.
2001 Daniel Levy tekur við af Sir Alan Sugar sem stjórnarformaður.
2002 Félagið kemst í úrslit deildabikarsins í 5. skipti og spilar í fyrsta skipti á Millenium Stadium í Cardiff.
2003 Félagið lendir í 10. sæti Úrvalsdeildarinnar. Jamie Redknapp verður fyrirliði félagsins, Glenn Hoddle er sagt upp störfum og David Pleat ráðinn Caretaker Manager út tímabilið.
2004 14. sæti í Úrvalsdeildinni, David Pleat lætur af störfum í júlí. Frank Arnesen, Jacques Santini og Martin Jol eru ráðnir til að sjá um að endurbyggja liðið. Santini hættir skyndilega í nóvember, Martin Jol tekur við aðalliðinu.
2005  Félagið lendir í 8. sæti Úrvalsdeildarinnar sem er besti árangur síðan 1995. Frank Arnesen yfirgefur félagið yfir sumarið og gengur til liðs við Chelsea.
2006 Besti árangur frá upphafi í Úrvalsdeildinni, 5. sæti. Félagið tekur þátt í UEFA bikarnum í fyrsta sinn á nýrri öld. Michael Carrick seldur til Man. Utd fyrir 18 milljónir, sem er félagsmet.

2007  Darren Bent verður dýrasti leikmaður í sögu félagsins en hann kemur frá Charlton á 16,5 milljón. Martin Jol er rekinn í lok október eftir verstu byrjun Tottenham frá því að úrvalsdeildin var stofnuð og voru þeir Chris Houghton og Hans Seagers einnig látnir taka poka sinn. Við stjórn liðsins tekur Juande Ramos og honum til aðstoðar Gus Poyet fyrrum leikmaður Tottenham. Einnig kemur nýr fitness þjálfari til liðsins, Marcos Alvarez.