Tottenham hafði sigur í fyrsta leik tímabilsins 2014-2015 þegar spilað var gegn West Ham á útivelli. Leikar fóru 0-1.
Leikurinn var ekki mikið fyrir augað, Naughton fékk rautt spjald í fyrri hálfleik fyrir að handleika knöttinn innan vítateigs og þótti rauða spjaldið mjög harður dómur. Noble steig á punktinn fyrir West Ham og skaut hann framhjá.
Sigurmark Tottenham kom í uppbótartíma þegar nýr leikmaður Tottenham, varnarmaðurinn Eric Dier komst einn gegn markverði West Ham og lék á hann og rúllaði boltanum í netið. Frábær vinnusigur hjá Tottenham.









