Tottenham – Chelsea ( upphitun )
Tottenham spilar á morgun laugardag við lið Chelsea og er leikurinn á White Hart Lane og hefst kl. 11.45 að íslenskum tíma. Chelsea eru ósigraðir í deildinni og sitja í efsta sæti deildarinnar með fjögurra stiga forskot á Man. Utd sem eru í öðru sæti. Tottenham eru í fimmta sæti deildinnar eftir mjög svo brösuga byrjun, en liðið hefur unnið síðustu fjóra deildarleiki.
Tottenham og Chelsea hafa spilað 188 sinnum í gegnum tíðina, allt frá fyrsta leiknum sem var æfingarleikur á Stamford Bridge árið 1908 sem endaði með jafntefli 2-2. Af þessum 188 leikjum hefur Tottenham unnið 68 , Chelsea hefur unnið 73 og 47 leikjum hefur lokið með jafntefli. Í Úrvalsdeildinni er þetta svoldið önnur saga. Liðin hafa mæst 40 sinnum í Úrvalsdeildinni og hefur Tottenham einungis unnið þrjá leiki af þessum 40, Chelsea hefur unnið 22 leiki og 17 leikir hafa endað með jafntefli.
Tottenham gekk mjög illa með að vinna Chelsea í úrvalsdeildinni, og var það ekki fyrr en í nóvember 2006 sem Tottenham vann Chelsea í fyrsta skipti í úrvalsdeildinn með 2-1 sigri þar sem Dawson og Lennon skoruðu mörkin. Fram að því höfðu liðin mæst 28 sinnum og Tottenham aldrei unnið. Síðan sigurinn 2006 hefur Tottenham unnið Chelsea tvisvar í viðbót í deildinni. Mars 2009 , 1-0 þar sem Modric skoraði sigurmarkið og svo apríl 2010 , 2-1 þar sem Defoe ( víti ) og Bale skoruðu mörkin. Í síðustu 8 deildarleikjum hafa bæði lið unnið tvo leiki og fjórir leikir hafa endað með jafntefli.
Tottenham síðustu 5 leikir í deild
Norwich ( h ) 1-1
Reading ( ú ) 1-3
QPR ( h ) 2-1
Man Utd ( ú ) 2-3
Aston Villa ( h ) 2-0
4 sigrar , 1 jafntefli og ekkert tap. Markatalan 11 – 5
Chelsea síðustu 5 leikir í deild
Newcastle ( h ) 2-0
QPR ( ú ) 0-0
Stoke ( h ) 1-0
Arsenal ( ú ) 1-2
Norwich ( h ) 4-1
4 sigrar , 1 jafntefli og ekkert tap. Markatalan 9 – 2
Tottenham
Markahæstir
Defoe – 4 mörk
Bale – 2 mörk
Stoðsendingar
Bale – 3 stoðsendingar
Defoe – 2 stoðsendingar
Dembele – 2 stoðsendingar
Lennon – 2 stoðsendingar
Chelsea
Markahæstir
Torres – 4 mörk
Lampard – 3 mörk
Ivanovic – 3 mörk
Stoðsendingar
Hazard – 6 stoðsendingar
Mata – 4 stoðsendingar
Torres – 3 stoðsendingar
Líkleg byrjunarlið









