Modric til Real Madrid ( staðfest )

0
650

Þá er loksins kominn endir á þetta Modric rugl sem er búið að vera í gangi í næstum allt sumar.  Luka Modric var í dag seldur til Real Madrid á Spáni.  Kaupverðið er talið vera rúmlega 30M punda.  Óskum við Modric góðs gengis hjá nýju liði.  Vonandi mun Levy nýta þennan pening sem fékkst á sölunni á Modric til að styrkja liðið frekar fyrir tímabilið.  En Levy og AVB verða að hafa hraðar hendur,   því félagsskiptaglugginn lokar á föstudaginn á miðnætti ( 23.00 að íslenskum tíma )