Jafntefli heima gegn WBA

0
651

Tottenham lék á laugardaginn sinn fyrsta heimaleik í Ensku Úrvalsdeildinni tímabilið 2012-13.  Andstæðingarnir voru lið WBA sem m.a. sigruðu Liverpool 3-0 í fyrstu umferðinni.  Leikurinn á laugardaginn endaði með jafntefli 1-1 þar sem Ekotto skoraði fyrir Tottenham seint í síðari hálfleik,  en þegar lítið var eftir tókst WBA að jafna metin.   Tottenham voru miklu betri í ca. 85 mínútur í leiknum , en lokamínúturnar voru eign WBA og jöfnuðu þeir leikinn þar verðskuldað.  Tottenham er því með 1 stig eftir tvo leiki sem getur ekki talist mjög gott.  En þó stigi meira en eftir 2 leiki í fyrra,  og þá náði Tottenham fjórða sætinu í deldinni.  þannig að það er nóg af stigum eftir í pottinum.